Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2008
svg
226,7 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á fallegum útsýnisstað við Stórakrika 25 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 226,7 m2, þar af einbýli 186,1 m2 og bílskúr 40,6 m2.
Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, gang/hol, geymslu, forstofu, eldhús, borðstofu, stofu og bílskúr. Vinsæl staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, verslun og alla helstu þjónustu. Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu og hellulögð verönd í suðurátt. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent


Nánari lýsing:
Forstofa er með miklu skápaplássi og flísum á gólfi. 
Gangur/hol er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er mjög rúmgott með parketi á gólfi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi með flísum á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er inn af forstofu, mjög rúmgott með flísum á gólfi. Úr herberginu er útgengt út á hellulagða verönd fyrir framan húsið.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, með vegghengdu salerni, handklæðaofni,  sturtu og innréttingu. Gluggi er á baðherbergi.
Gestasnyrting er inn af forstofu, flísalögð í hólf og gólf, með lítillii innréttingu og vegghengdu salerni. Gluggi er á gestasnyrtingu.
Stofa og borðstofa er í rúmgóðu opnu rými með mikilli lofthæð og innbyggðri lýsingu. Parket á gólfi. Úr rýminu er útgengt út á hellulagða verönd í suðurátt. Mjög fallegt útsýni er úr stofu.
Eldhús er opið inn í stofu og borðstofu. Í eldhúsi er hvít innrétting með eyju. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu. 
Geymsla er inn af á gangi/holi með flísum á gólfi (þvottahús á teikningu). Úr geymslu er innangengt inn í bílskúrinn.
Bílskúr er rúmgóður með flísalögðu gólfi, rafmagns bílskúrshurðaropnara. Rennandi vatn, hiti og rafmagn. Góð L-laga innrétting með vaski og helluborði er í bílskúr. Tengi fyrir þvottavél er í bílskúr. Stórir gluggar eru í bílskúr.

Verð. kr. 179.000.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. jún. 2009
49.060.000 kr.
37.553.000 kr.
226.7 m²
165.651 kr.
19. maí. 2008
8.710.000 kr.
45.000.000 kr.
226.7 m²
198.500 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ