Lýsing
Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir, Lögg. fasteignasli kynna bjarta og fallega endaíbúð á efstu hæð við Grýtubakka.
Eignin er skráð 80,2 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, þar af er geymsla 7,2 fm. og íbúðin sjálf 72 fm.
Búið er að endurnýja glugga og yfirfara ytra byrði og þak, húsið lítur húsið mjög vel út.
Komið er inn í sameiginlegan inngang og snyrtilega sameign. Inngangur er undir skynnig og aðkoma góð.
Íbúðin skiptist í; forstofu/hol, eldhús, stofu, baðherbergi og rúmgott svefnherbergi, svalir, sérgeymslu auk sameiginlegrar vagna- og hjólageymslu.
Nánari lýsing eignar: Rúmgott hol með fataskáp.
Eldhús er með ljósri innréttingu með góðu skápa- og bekkplássi. Gluggi við enda eldhússins við borðkrók og trengingu við borðstofuna tryggir gott birtuflæði.
Stofan er rúmgóð og og rúmar vel bæði setustofu og borðstofu, hún er björt með stórum gluggum í suður og hurð út á svalirnar.
Svefnherbergið er sérlega rúmgott með góðum fataskápum, það býður upp á möguleika á að skiptaupp og fá auka herbergi.
Baðherbergi er uppgert með flotuðu gólfi með gólfhita, baðkari með upphengdri sturtu, upphengdu salerni og handlaug. Þar er tenging fyrir þvottavél.
Geymsla. Rúmgóð 7m2 sérgeymsla í sameign.
Vagna- og hjólageymsla er í sameign, gott aðgengi frá jarðhæðinni.
Garðurinn og umhverfið er afar snyrtilegt og barnvænt.
Bílastæði eru beggja vegna við húsið og alla jafna næg bílastæði.
Stutt í alla þjónustu, góðar samgöngur, fallegt útivistarsvæði og gönguleiðir.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir; Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.