Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
fjölbýlishús

Þórunnarstræti 106C

600 Akureyri

84.500.000 kr.

505.685 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2151930

Fasteignamat

64.850.000 kr.

Brunabótamat

78.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1948
svg
167,1 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf., s. 570-4500 kynnir til sölu einstaklega falleg efri sérhæð ásamt bílskúr við Þórunnarstræti 106C á Akureyri. Samkvæmt HMS er eignin 167 fermetrar að stærð og skiptist þannig að íbúð er 142,1 fermetrar og bílskúr 25,0 fermetrar. Þrjár íbúðir eru til sölu í húsinu.

Eignin er sérlega falleg efri sérhæð í góðu steinsteyptu fjórbýlishúsi miðsvæðis á Akureyri. Örstutt í sundlaug Akureyrar eða niður gilið og í miðbæinn. 
Gluggar og gler er nýlega endurnýjað. Þak nýlega endurnýjað. Að sögn fyrri eigenda var mokað frá húsinu og dren endurnýjað um 2000. 


Nánari lýsing:
Stigagangur, er með nýju teppi 
Forstofa, með parketi
Hol, með parketi á gólfi. Nýlega niðurtekið loft með fallegri led lýsingu
Stofurnar, eru tvær, voru samliggjandi og auðvelt að breyta aftur. Eikarparket er á gólfi, úr annarri stofunni er útgengi út á svalir til vesturs. 
Eldhús, var endurnýjað árið 2016. Flísar á gólfi. Góð eikarinnrétting frá Tak innréttingum, flísar milli efri og neðri skápa. Ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél.
Svefnherbergin, eru þrjú og eru þau öll með parketi á gólfi. Fataskápur í hjónaherberginu. 
Baðherbergið, var endurnýjað árið 2016, Flísar í gólf og veggi. Baðkar, wc og handklæðaofn. Innrétting við vask og að auki skápur og skúffur.  Gluggi er á baði.
Þvottahús, er innan íbúðar.
Í bakgarði, er stór pallur með garðhúsi.

Húsið hefur verið endurnýjað að miklu leyti á síðustu árum skv. upplýsingum frá seljanda eignarinnar:
Nýjar inntakslagnir fyrir heitt og kalt vatn.
Nýr brunnur í lóð og frárennslislagnir í lóð eru nýjar.
Nýr ljósleiðari.
Inntaksrör hafa verið lögð í bílskúr.
Húsið var málað að utan og innan árið 2024.
Þakrennur og niðurfallsrör yfirfarin og endurnýjuð árið 2024.
Þakjárn var endurnýjað fyrir nokkrum árum og er í lagi.
Raflagnir og vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar að hluta.
Ný rafmagnstafla fyrir allar íbúðir + fyrir allt húsið (í sameign).
Ný inntaksgrind fyrir vatn.
Ný hitalögn í bílaplani.
Búið er að jarðvegsskipta allt í kringum húsið og drena.
Nýsteypt bílaplan og nýsteyptar gangstéttar.
Nýjar svalir á efri hæð + ný handrið á efri og neðri svölum.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

 

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. des. 2022
51.150.000 kr.
120.000.000 kr.
10201 m²
11.764 kr.
2. maí. 2019
36.400.000 kr.
109.000.000 kr.
439.9 m²
247.784 kr.
28. maí. 2014
24.250.000 kr.
28.200.000 kr.
213.3 m²
132.208 kr.
19. júl. 2007
18.730.000 kr.
25.400.000 kr.
213.3 m²
119.081 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone