Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1982
119,4 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 25. ágúst 2026
kl. 17:00
til 17:30
Fasteignasali tekur á móti áhugasömum
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Falleg og töluvert endurnýjuð endaíbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi við Álftaland 7 í Fossvoginum. Eignin er skráð alls 119,4 fm og skiptist í forstofu, eldhús opið til borðstofu og stofu, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Bætt hefur verið við þriðja svefnrýminu en það er gluggalaust og ekki á teikningu. Yfirbyggðar svalir til suðurs úr stofu og svalir úr hjónaherbergi til vesturs. Í sameign er einnig auka svefnherbergi sem fylgir íbúð með aðgangi að sameiginlegu salerni. Sérgeymsla íbúðar er staðsett í sameign og sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla- og vagnageymslu. Eftirsótt staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir og fallegar göngu- og hjólaleiðir. Íbúðin er laus við kaupsamning.**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing:
Aðkoman að húsinu er mjög snyrtileg og aðeins ein íbúð er á hæð (einungis fimm íbúðir í húsinu). Gluggar eru á þrjá vegu í íbúðinni og er hún því einstaklega björt. Glæsilegt útsýni til suðurs og víðar.
Íbúðin er skráð 100,5 fm, svefnherbergi í sameign 13,2 fm. og sérgeymsla 5,7 fm. Samtals birt stærð eignarinnar 119,4 fm. og að auki hlutdeild í sameign.
Forstofa er með tvöföldum nýlegum fataskáp.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað og með fallegri ljósri vaskinnréttingu með góðu skápaplássi, sturta með glerþili og upphengt salerni. Flísar eru á gólfum og vegg að hluta, góður opnanlegur gluggi.
Eldhús er nýlega endurnýjað með fallegum, stílhreinum innréttingum og kvartssteinn á borðum. Mjög gott skápapláss er í innréttingu, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og einnig tækjaskápur. Í eldhúseyju er spanhelluborð og vifta.
Borðstofa og stofa er í rúmgóðu og björtu alrými, stórir gluggar með glæsilegu útsýni. Útgengt er út á svalir til suðurs með svalarlokun.
Hjónaherbergi (1) er mjög rúmgott og bjart með miklu skápaplássi, parket á gólfum. Út hjónaherbergi er útgengt út á vestur svalir.
Svefnherbergi (2) er einnig mjög rúmgott og bjart með tvöföldum fataskáp, parket á gólfum.
Svefnherbergi (3) er staðsett í sameign um 13,7 fm. að stærð (skráð sem geymsla) með opnanlegum glugga og nýlegu fallegu harðparketi á gólfi. Aðgengi er að sameiginlegri salernisaðstöðu í sameign.
Sérgeymsla íbúðar er 5,7 fm. að stærð, staðsett í sameign.
Þvottahús er sameiginlegt, mjög snyrtilegt þar sem hver og einn er með tengi fyrir sína vél. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæði eru sameiginleg fyrir framan hús.
Garður er sameiginlegur, mjög snyrtilegur með hellulagðri verönd bakatil, tyrfð og með trjágróðri, sjávargrjót er upp við hús.
Helstu endurbætur og viðhald síðustu ára
2026: Austurhlið hússins var máluð.
2025: Múrviðgerðir á austurhlið og skipt um gler að hluta.
2024: Parket íbúðar pússað upp og lakkað og settir nýjir fataskápar að hluta.
2022: Eldhús endurnýjað.
2020-2021: Húsið sprunguviðgert og málað, svalir endurmúraðar og sett ný útiljós á svalir. Skipt var um þrýstijafnara á heitu vatni í sameign. Tréverk endurnýjað í þakkanti.
2018: Baðherbergi gert upp.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
Athugið að seljandi eignast íbúðina í makaskiptum og hefur því aldrei búið í eigninni.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. sep. 2020
51.000.000 kr.
55.200.000 kr.
119.4 m²
462.312 kr.
4. maí. 2018
47.400.000 kr.
53.500.000 kr.
119.4 m²
448.074 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026