Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2024
64,5 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Opið hús: 26. ágúst 2026
kl. 17:00
til 17:30
Fasteignasali tekur á móti áhugasömum í íbúð 102
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Falleg tveggja herbergja íbúð í nýlegu lyftuhúsi við Sunnusmára 13 í Kópavogi. Góð fyrstu kaup. Íbúðin er skráð 64,5 fm og skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu í kjallara. Góðar svalir sem vísa til norðvesturs. Fallegur sameiginlegur garður til suðvesturs sem er fullfrágenginn og fjöldi bílastæða á lóð. Frábær staðsetning miðsvæðis í borginni og örstutt í alla þjónustu.**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing:
Forstofa: Harðparket á gólfi. Góður fataskápur frá GKS.
Eldhús: Falleg eldhúsinnrétting frá Nobilia með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Gott borð- og skápapláss. Harðparket á gólfi.
Borðkrókur: Ágætur borðkrókur er við eldhús með sérsmíðuðum bekk. Harðparket á gólfi.
Stofa: Björt og opin við eldhús með harðparketi á gólfi. Útgengi úr stofu á 4,2 fm svalir sem vísa til norðvesturs.
Svefnherbergi: Er mjög rúmgott með góðu skápaplássi. Fataskápar frá GKS. Góð vinnuaðstaða er innst í herbergi.
Baðherbergi: Með fallegum flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Innrétting við vask, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Tengi fyrir þvottavél/þurrkara.
Geymsla: Ágæt 6,4 fm geymsla fylgir íbúð og er staðsett í kjallara.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. nóv. 2023
23.000.000 kr.
58.000.000 kr.
64.5 m²
899.225 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026