Lýsing
Íbúðin er í tvíbýlishúsi, mjög vel staðsett miðsvæðis í Garðabæ þar sem göngufæri er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, verslanir og fleira.
Forstofa er flísalögð.
Stofan og hol eru með harðparketi á gólfi.
Eldhúsið er með eldri innréttingu og flísum á gólfi.
Svefnherbergin tvö eru með harð / plastparketi á gólfi og er fataskápur í stærra herberginu.
Baðherbergið er fl´sialagt með sturtu, handklæðaofni og lítilli innréttingu.
Þvottahús er í sameiginlegu rými, bæði innangengt úr íbúð og einnig að utan.
Bílskúrinn er 42,3 fm og er rúmgóður með steypt gólf og bílskúrshurð sem þarfnast lagfæringar. Lóðin er sameiginleg.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
---------------------------------------------------------
Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat