Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Auður Sigr Kristinsdóttir
Páll Guðjónsson
Ólafur Tryggvason Thors
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2009
svg
341,3 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 30. september 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Brekkuás 25, 221 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 30. september 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Guðbergur og fasteignasalan Bær kynna: Glæsilegt 341 fm einbýlishús á einum fegursta útsýnisstað Áslands við Brekkuás 25, Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að efri hæðin er 115,0 fm, neðri hæðin er 139,5 fm og bílskúrinn 55,8 fm, samtals 310,3 fm skv. Þjóðskrá Íslands en raunstærð eignarinnar er 341 fm. Húsið er byggt árið 2009 og er í mjög góðu ásigkomulagi. Gólfhiti er í öllu húsinu og hiti í plani. Granít er á öllum innréttingum og gluggakistum, nema í eldhúsi þar sem gler er á gluggakistum. Innfelld lýsing er í loftum, aukin lofthæð er í öllu húsinu og hærri hurðar en þykir hefðbundið.


Nánari lýsing: 
Efri hæð: Forstofa með skápum og flísum á gólfi. Björt stofa og borðstofa með parketi á gólfi, þaðan sem útgengt er á rúmgóðar hornsvalir. Glæsilegt, óskert útsýni er úr stofunni og af svölum yfir að náttúru Heiðmerkur í algjöru næði. Eldhús með hvítri háglans innréttingu, granítborðplötu, ofni í vinnuhæð og örbylgjuofni, stæði f. tvöföldum ísskáp og spanhelluborði m/viftu yfir. Flísar eru á gólfi og öll eldhústæki eru frá Miele. Gestasalerni er á hæðinni með veggsalerni, háglans innréttingu og flísum á gólfi og veggjum að hluta. Teppalagður stigi liggur niður úr stofu.
Neðri hæð: Rúmgott hol með parketi á gólfi sem hægt er að nýta sem sjónvarpshol. Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni; þrjú rúmgóð barnaherbergi með skápum og parketi, og glæsilegt hjónaherbergi með fataherbergi inn af og sér baðherbergi með baðkari, flísalagt í hólf og gólf. Einnig er rúmgott sjónvarpsherbergi á hæðinni með hagnýtri geymslu inn af. Úr holi er útgengt á lóð.
Lóð og umhverfi: Lóðin er fullbúin með stimplaðri bomanite-steypu, skjólveggjum, grasverönd og sólpalli. Gert er ráð fyrir heitum potti á lóðinni. Staðsetningin býður upp á einstaka tengingu við náttúruna.  
Innangengt er í 55,8 fm bílskúrinn úr forstofu. Bílskúrinn er mjög rúmgóður með epoxy á gólfi, hita, rafmagni, vatni og hurðaopnara. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001  beggi@fasteignasalan.is

Fasteignasalan Bær

Fasteignasalan Bær

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. júl. 2017
76.750.000 kr.
109.000.000 kr.
310.3 m²
351.273 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan Bær

Fasteignasalan Bær

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík