Opið hús: Kambavað 1, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 31. ágúst 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Endaíbúð á 2. hæð í lyftufjölbýli með stæði í lokaðri bílageymslu ásamt glæsilegu útsýni til suðurs að Elliðavatni og til Bláfjalla.
Anddyri er rúmgott með flísum. Fataskápar.
Hol með parketi
Eldhús er opið inn í stofu og borðstofu með útgengi út á svalir til suðausturs með fallegu útsýni.
Rúmgott hjónherbergi með fataskápum.
Tvö rúmgóð barnaherbergi.
Baðherbergi er flísalagt og með sturtu og baðkari.
Sér þvottahús er innan íbúðar.
Rúmgóð geymsla er í sameign, skráð 16,8 fm
Auk þess fylgir íbúðinni sér bílastæði í lokaðri bílageymslu og er með rafhleðslustöð.
Íbúðin er skráð 113,9 fm og geymsla 16,8 fm, samtals 130,7 fm. ásamt sér stæði í lokaðri bílageymslu.
Gott og fjölskylduvænt hverfi með skóla í næsta nágrenni.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.