Lýsing
Við lokum aldrei!!!
Mjög gott og mikið endurnýjað 7 herbergja 229m2 einbýlishús á flottum stað á Dalvík, bílskúr og falleg lóð fylgir, svalir með flottu útsýni til suður og vesturs.Lýsing:
Forstofa: Ljósar flísar á gólfi, góð spónlögð innrétting og gott skápapláss í forstofu.
Stofa: Ljóst parket, stórir gluggar sem gera rýmið bjart og skemmtilegt.
Borðstofa er inn af eldhúsi, þar er parket á gólfi.
Eldhús: Afar vel skipulagt og rúmgott. Ný gólfefni, ljós glæný innrétting með ljósum borðplötum, niðurfelldum vaska, keramik spanhelluborði, svört heimilistæki frá Siemens, ofn og örbylgjuofn. Ísskápur og uppþvottavél innbyggð í innréttingu.
Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, í hjónaherbergi eru góðir fataskápar, ljóst parket á þeim öllum, stofu og borðstofu.
Baðherbergi er nýlega uppgert, ljósbrúnar flísar á gólfi og ljósar flísar á veggjum, spónlögð innrétting, hvít hreinlætistæki, vegghent salerni, handlaug og sturtuklefi.
Stigi milli hæða er með brúnu teppi, sérinngangur er á neðri hæð og auðvelt að hafa tvær íbúðir í húsinu.
Neðri hæð:
Forstofa er með ljósum flísum á gólfi.
Svefnherbergi eru þrjú. Nýtt parket á öllum sem og í alrýminu.
Baðherbergi á neðri hæð er með ljósum flísum á gólfi, hvít nýleg innrétting, sturta með flísalögðum botni.
Rúmgott þvottahús er á neðri hæð ásamt lítilli geymslu. Hvít innrétting með efri og neðriskápum og vaskur. Bakdyrainngangur er í þvottahús.
Geymsla: Lítil geymsla er undir stiganum upp á efri hæð. Einnig lítil geymsla undir útistiga.
Nýtt gler í flestum gluggum
Ný rafmagnstafla á efri hæð.
Falleg, gróin og vel hirt lóð, tvöfalt bílastæði.
- Vel staðsett eign á rólegum og góðum stað í bænum.
- Gott útsýni af sólpalli.
- Sólpallur byggður upp þannig að hann stendur í sömu hæð og svalir fyrir framan hús
- Stutt í verslun.
- Stutt í skóla.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 arnar@fastak.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.