Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hilmar Gunnlaugsson hrl
Sigurður Magnússon
Bryndís Björt Hilmarsdóttir
Vista
einbýlishús

Fagrihjalli 12

690 Vopnafjörður

37.500.000 kr.

228.380 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2171729

Fasteignamat

30.050.000 kr.

Brunabótamat

85.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1974
svg
164,2 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

INNI fasteignasala kynnir: Höfum fengið í einkasölu Fagrahjalla 12, Vopnafirði, vel byggt hús sem vel hefur verið hugsað um (sömu eigendur alla tíð). 
Tveir inngangar eru inn í íbúðarrýmið. Fyrst er komið að þvottahúsinngangi, þar er steypt gólf með flögumálningu og niðurfalli. Rúmgott rými með ágætri innréttingu. Hitakútur.
Eldhús og borðstofa, plastparket á gólfi. Innrétting frá 2010, með AEG helluborði, háf sem er tengdur út, ofn í vinnuhæð. Ísskápur er uppi í innréttingu. Borðstofa er rúmgóð. 
Aðalinngangur flísalögð forstofa, þaðan er komið inn í parketlagt hol með góðum skápum.
Til hægri er komið inn í stofu, sem er með góðu útsýni yfir fjörðinn. Þar til hægri er herbergi, sem er í dag nýtt sem skrifstofa. 
Þrjú svefnherbergi í norðurenda. Hjónaherbergi snýr að hafi, plastparket á gólfi, skápur frá 2010 með stórum rennihurðum. 
Lítið svefnherbergi með tvöföldum skáp og að götu er stórt svefnherbergi með fjórföldum fataskápi. 
Baðherbergi er í rými milli borðstofu og stofu. Flísalagt árið 1988, veggir og gólf. Tvær öndunartúður. Sturtuklefi og baðkar. 
Vatnslagnir upprunalegar. Fyrir nokkrum árum (2022) var skipt um þak á húsinu (timbur ófúið, skipt um járn) og þá voru gluggar skoðaðir, bæði hvað varðar fúa eða móðu, en ekkert fannst. Ný hurð úr stofu út í garð. Húsinu hefur verið haldið vel við í gegnum tíðina og málað reglulega.
Bílskúr sambyggður við húsið, með sérinngangi. Með rafmagni og köldu vatni. Rafdrifin bílskúrshurð. 
Lóð mjög snyrtileg. Hellulagt bílastæði með niðurfalli.
 

INNI fasteignasala ehf

INNI fasteignasala ehf

Fagradalsbraut 11, 700 Egilsstaðir
phone
INNI fasteignasala ehf

INNI fasteignasala ehf

Fagradalsbraut 11, 700 Egilsstaðir
phone