Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þorbjörnsson
Kristinn Sigurbjörnsson
Haukur Andreasson
Elín Frímannsdóttir
Sigurjón Rúnarsson
Ásgeir Þór Ásgeirsson
Halla Vilbergsdóttir
Vista
einbýlishús

Blikatjörn 6

260 Reykjanesbær

117.900.000 kr.

569.565 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2281763

Fasteignamat

115.850.000 kr.

Brunabótamat

113.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
207 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Blikatjörn 6, 260 Reykjanesbær, Skráð stærð eignar skv. FMR er 207 fm. Eignin skiptist í íbúð 158,9 fm og 49 fm bílskúr. 
Um er að ræða reglulega smekklegt og vel hannað fjögurra herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr, staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Njarðvík. 

Upplýsingar um eignina veitir:
Halla Vilbergs löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930, tölvupóstur halla@allt.is


Eignin er björt, rúmgóð og einstaklega praktísk í skipulagi, með fallegu flæði milli rýma og skjólgóðum suðurpalli með heitum potti. 
Eignin hefur að geyma forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu og borðstofu, sjónvarpshol, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. 
 
Helstu kostir: 
*** Einbýli á einni hæð 
*** Stór og vel hirtur garður og vel viðhaldið hús 
*** Skjólgóður suðurpallur með nýjum heitum potti 
*** Aukin lofthæð og björt rými 
*** Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi 
*** Stutt í skóla, leikskóla, verslanir, sund og líkamsrækt 
*** Stílhreint og opið eldhús með eikarinnréttingu og eyju 
*** Rúmgott hjónaherbergi með nýjum fataskápum 
*** Innbyggður 49 fm bílskúr með epoxy gólfi og geymslulofti 
 

Nánari lýsing eignar: 
Anddyri: Flísalagt með góðum fataskápum. Innangengt í bílskúr þar sem er rúmgott geymsluloft. 
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með flísum á gólfi. Útgengt er á verönd með afgirtum timburpalli og heitum potti. 
Eldhús: Stílhreint og opið eldhús með eikarinnréttingu og eyju sem eykur vinnu- og geymslupláss. Innbyggður bakaraofn og örbylgjuofn í vinnuhæð og spanhelluborð. Nýr vaskur og blöndunartæki. Quarts borðplötur. Flísar á gólfi og opið rými við stofu sem skapar skemmtilega heild. 
Sjónvarpshol: Rúmgott fjölskyldurými með flísum á gólfi. 
Hjónaherbergi:  Er rúmgott og bjart, parketlagt með eikarparketi. Upphaflega var þar sér fataherbergi, en rýmið hefur verið endurbætt og nú eru nýir, vandaðir fataskápar komnir í herbergið sjálft. Rýmið sem áður var fataherbergi var hugsað sem framtíðar baðherbergi og býður enn upp á slíka möguleika ef nýir eigendur óska þess. 
Svefnherbergi 1 & 2: Tvö góð barnaherbergi, bæði með eikarparketi og eikar fataskápum. 
Baðherbergi: Smekklegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar og endurnýjuð sturta, upphengt salerni og snyrtileg innrétting. Blöndunartæki yfirfarin af fagmönnum. 
Þvottahús: Þvottahús með góðum innréttingum og hurð út á baklóð, epoxy á gólfi.  
 
Geymsla / herbergi: 
49 fm innbyggður bílskúr með epoxy á gólfi, nýjum ljósum og geymslulofti. 
Á lóð er einnig geymsluskúr sem fylgir. 
 
Staðsetning 
Blikatjörn 6 er í einstaklega góðu og rólegu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu – skóla, leikskóla, matvöruverslanir, sund og líkamsrækt. 

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

img
Halla Vilbergsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone
img

Halla Vilbergsdóttir

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. feb. 2019
63.000.000 kr.
61.500.000 kr.
207 m²
297.101 kr.
14. des. 2007
17.740.000 kr.
30.300.000 kr.
207 m²
146.377 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone

Halla Vilbergsdóttir