Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Vista
einbýlishús

Öldugata 6

620 Dalvík

64.900.000 kr.

422.801 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2155324

Fasteignamat

53.950.000 kr.

Brunabótamat

78.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1967
svg
153,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Laus strax

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala 

Öldugata 6 - Dalvík

Nokkuð endurnýjað 4 herbergja einbýlishús með sér þvottahúsi og stakstæðum bílskúr í norður enda bæjarins.  Óhindrað útsýni er til norðurs og almennt fallegt útsýni úr húsinu. Bílaplan rúmar um þrjá bíla fyrir framan bílskúr sem er stakstæður en með gönguhurð á hlið sem snýr að bakgarði. 


Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, þvottahús, bakdyrainngang, geymslu, stofu, gang, baðherbergi og þrjú svefnherbergi auk bílskúrs. Samtals stærð samkvæmt HMS er 153,5 fm. þar af er bílskúr 32 fm.. 

Forstofa er með flísar á gólfi og opnu fatahengi með skápum fyrir ofan.
Hol og borðstofukrókur er með parket á gólfi og opið inn í eldhús. 
Eldhús er með flísar á gólfi, svarta innréttingu með innbyggðum ísskáp sem fylgir, bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél. Gott skápa- og bekkjarpláss. 
Inn af eldhúsi er þvottahús, bakdyrainngangur og geymsla. Sömu flísar eru þar og á eldhúsi, innrétting með skápum, vask og stæði fyrir þvottavél auk þurrkara er í þvottahúsi. Fataskápar eru við bakdyrainngang sem snýr að bílastæði en einnig er hægt að komast út í garð úr þvottahúsi. Geymsla er með glugga og þar er t.d. rafmagnstaflan. 
Stofa er mjög björt, með parket á gólfi og aðgengileg af holi og úr eldhúsi. 
Herbergjagangur er með parket á gólfi. 
Baðherbergi er nýlega endurnýjað, þar eru flísar á gólfi og stærstum hluta veggja. Baðkar með sturtutækjum, upphengt salerni og innrétting í kringum vask. Gluggi er á baðherbergi. 
Svefnherbergi eru þrjú öll þokkalega rúmgóð, hjónaherbergi er með góðum skápum.  

Bílskúr er með rafmagns innkeyrsluhurð og búið er að endurnýja bæði inngönguhurð sem og glugga. Þá var settur upp léttur milliveggur til að útbúa herbergi í enda bílskúrs.  

Annað: 
-Búið er að endurnýja í gegnum tíðina gler að mestu í íbúðarhluta og glugga og hurð í bílskúr 2021.
-Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2019
-Baðherbergi endurnýjað 2019
-Öryggi í rafmagnstöflu og mælir endurnýjað 2019 ásamt raflagnir í húsinu
-Allar neysluvatnslagnir endurnýjaðar, bæði heitt og kalt 2019
-Inntak fyrir heitt og kalt vatn endurnýjað 2019 ásamt heitavatnsgrind - staðsett í bílskúr
-Gólfhiti með þráðlausri stýringu
-Frárennsli endurnýjað og drenað ca. 2013
-Ljósleiðari tengdur 
-Einangrun bætt við útveggi í tveimur svefnherbergjum
-Hiti í bílaplani, affal af húsinu
-Gerðar hafa verið viðgerðir á járninu á þakinu en líklega þyrfti að fara að huga að framkvæmdum á því og endurnýjun

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. maí. 2024
44.350.000 kr.
24.500.000 kr.
10101 m²
2.426 kr.
20. apr. 2018
22.850.000 kr.
24.700.000 kr.
153.5 m²
160.912 kr.
18. júl. 2013
16.550.000 kr.
21.500.000 kr.
153.5 m²
140.065 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone