Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1960
svg
219,2 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 31. ágúst 2026 kl. 16:30 til 17:00

Lýsing

** Opið hús mánudaginn 31. ágúst frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **   

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt 219,2 m2 raðhús á tveimur hæðum við Karfavog 18 í Reykjavík. Frábært fjölskylduhús. Fallegur afgirtur og skjólgóður bakgarður með timburverönd. Stórar þaksvalir. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er fyrir frama bílskúr.
Eignin skiptist í: Neðri hæð: Forstofa, gestasnyrting, þvottahús, bílskúr, herbergi, hol, eldhús, stofa, borðstofa og sólstofa. Efri hæð: Fjögur svefnherbergi, geymsla og baðherbergi. Eignin er skráð 219,2 m2, þar af íbúðarrými 194 m2 og bílskúr 25,2 m2. 
Frábær staðsetning á rólegum stað, þar sem er stutt í skóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslanir og alla helstu þjónustu. Húsið er í göngufæri við Laugardalinn og Elliðaárdalinn. Húsið er hannað af Sigvalda Thordarson og er því eitt af Sigvalda húsunum vinsælu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent

Endurbætur samkvæmt seljanda: 
Fyrir um 8 árum var baðherbergi á efri hæð hússins endurnýjað og allar lagnir í það ásamt klósettstamma. Gestasnyrting og eldhústekið í gegn, allar neysluvatnslagnir settar nýjar í húsinu. Gólfhiti settur í eldhús, forstofu, gestasnyrtingu og arinstofu, aðrar ofnalagnir en gólfhiti eru gamlar í húsinu. Loft í bílskúr endurnýjað, ný einangrun sett í loft og klætt. Dregið var nýtt rafmagn í eldhús og þvottahús. Settur tvöfaldur tjörupappi á svalir fyrir um 7 árum. Þvottahús var tekið í gegn fyrir um 4 árum síðan. Skipt var um öll opnarleg gluggafög fyrir um 1 ári síðan. Fyrir um 2. árum síðan var þak endurnýjað - skipt um járn, pappa og timbur eftir þörfum. Öll verk hafa verið unnin af fagmönnum.

Nánari lýsing:
Neðri hæð: Forstofa er með fataskáp, inn af henni er flísalögð gestasnyrting með vegghengdu salerni og handlaug. Eldhús er með fallegri innréttingu og borðkrók. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, blástursofn, helluborð og háfur. 
Rúmgóð borðstofa og tveimur þrepum neðar er stofa. Í stofu eru stórir gluggar og fallegur arinn. Sólstofa með flísum á gólfi. Úr sólstofu er gengið út á timburverönd og bakgarð í vesturátt. 
Inn af borðstofu er herbergi sem í dag er nýtt sem sjónvarpsherbergi. Gluggi út í sólskála.
Mjög rúmgott þvottahús er inn af eldhúsi með stórri innréttingu með vaski og miklu skápaplássi. Gert er ráð fyrir tveimur ísskápum, þvottavél og þurrkara í innréttingu. Gluggi er á þvottahúsi. Úr þvottahúsi er útgengi út á bílaplan. Bílskúrinn er skráður 25,2 m2 og er með rafmagni, hita og rennandi vatni.
Hol er með fallegum stiga upp á 2. hæð.
Gólf eru flotuð með sjónfloti, nema á gestasnyrtingu eru flísar. Marmari er í sólstofu.
Efri hæð:
Á efri hæð hússins eru 4 svefnherbergi og eru skápar í tveimur þeirra. Útgengt er úr einu svefnherbergi út á svalir sem eru yfir öllum bílskúrnum. Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, með vegghengdu salerni, innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu. Innbyggð blöndunartæki. Gluggi er á baðherbergi. Hol/gangur með fataskáum. Geymsla er innst á gangi. 
Parket er á gólfum nema á baðherbergi en þar eru flísar.

Verð. kr. 169.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. nóv. 2018
69.950.000 kr.
86.000.000 kr.
219.2 m²
392.336 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ