Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 105,2 m2, 4ra herbergja endaíbúð á eftu hæð (3.hæð) í lyftuhúsi ásamt stæði í bílageymslu við Uglugötu 36 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 105,2 m2 þar af íbúð 99,6 m2 og geymsla 5,6 m2. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Sérmerkt bílastæði í bílageymslu. Stórar svalir í suðurátt með fallegu útsýni. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem skóla, leikskóla, ósnortna náttúru og göngu- og hjólastíga.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp.
Stofa/borðstofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt með fallegu útsýni.
Eldhús er með fallegri innréttingu og eyju. Í innréttingu er helluborð, háfur og vaskur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott herbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er rúmgott og með góðri innréttingu, walk-in sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Geymsla er í kjallara. Er skráð 5,6 m2.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu merkt B16 fylgir eigninni. Búið er að setja upp hleðslustöðvakerfi frá ON við stæðið.
Eigninni fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Verð kr. 86.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.