Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður J. Tyrfingsson
Haraldur Björnsson
Vista
sumarhús

Skyrklettagata 4

806 Selfoss

43.000.000 kr.

709.571 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2236417

Fasteignamat

33.000.000 kr.

Brunabótamat

37.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1997
svg
60,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing


Skyrklettagata 4 – Laugarási, Bláskógabyggð. 
Til sölu er fallegur, bjartur og vel skipulagður 60,6 fm sumarbústaður við Skyrklettagötu 4 í Laugarási, á einstaklega góðum stað í hjarta uppsveita Árnessýslu.
Húsið stendur á 3.361 m² leigulóð og er kynnt með heitu vatni.
Frábær staðsetning
Laugarás er einstaklega vel staðsettur fyrir sumarhús, miðsvæðis á vinsælu ferðamannasvæði í uppsveitum Árnessýslu. Slakki dýragarður og Laugarás Lagoon eru í aðeins 5–10 mínútna göngufæri frá húsinu. Myndir af Slakka og Laugarás Lagoon fylgja með í myndamöppu eignarinnar. Auk þess er stuttur akstur í fjölbreytta þjónustu, afþreyingu og náttúruperlur svæðisins, má þar til dæmis nefna Skálholt og veiði í Brúará.
Húsið
Gengið er inn í forstofu með fatahengi og góðum skápum. Þaðan er komið inn í bjarta og góða stofu með stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn og tengja húsið fallega við umhverfið. Úr stofu er útgengt á timburverönd.
Eldhús er samtengt stofu og myndar gott og opið alrými.
Í húsinu eru þrjú svefnherbergi. Eitt með tvíbreiðu rúmi, eitt með einbreiðu rúmi (mögulegt að hafa koju) og eitt með koju og fataskáp, baðherbergi og svefnloft (rúmar vel 4-5 dýnur). Einnig er lagnarými/geymsla.
Lóð og umhverfi
Lóðin er falleg og náttúruleg og fellur húsið einstaklega vel að umhverfinu. Við húsið er góð timburverönd með heitum potti og skjólveggjum, þar sem hægt er að njóta útiveru og kyrrðar í góðu skjóli. Trampólín á lóðinni fylgir.
Húsið er kynnt með heitu vatni. Ljósleiðaratenging er kominn inn í húsið.
Skyrklettagata 4 er vel staðsettur og notalegur sumarbústaður fyrir þá sem vilja njóta uppsveitanna, með afþreyingu og þjónustu í næsta nágrenni.
Frárennsli tengist inná frárennsliskerfi sveitarfélagins þannig að rotþró er óþörf.
Sveitarfélagið sér um snjóruðning inn í hverfið og að stuttri heimreið sem liggur að bústaðnum.
Garðatorg eignamiðlun. Upplýsingar veitir
Sigurður Tyrfingsson
Löggiltur fasteignasali og húsasmíðameistari
Sími: 898-3708
Netfang: sigurdur@gardatorg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg 7, 210 Garðabæ
Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg 7, 210 Garðabæ