Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1990
242 m²
6 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Opið hús: 6. september 2026
kl. 14:00
til 14:30
Lýsing
Borg fasteignasala kynnir eignina Klukkuberg 2 í Hafnarfirði sem er glæsilegt 242 fm endaraðhús.
Hér er á ferðinni einstaklega fallegt og vel skipulagt endaraðhús á tveimur hæðum, staðsett á eftirsóttum stað við Klukkuberg í Hafnarfirði.
Á efri hæð: Stofa/borðstofa og eldhús, gesta salerni, svefnherbergi, hol/forstofa og bílskúr. Gengið er inn í forstofu úr henni er innangengt í bílskúr.
Stofan/borðstofan/eldhús er sérlega bjart og mikil lofthæð, þaðan er útgengi út á svalir. Frá svölunum er hægt að ganga niður á skemmtilegan pall á jarðhæð, sem tengir við fallegan stóran garð.
Úr stofunni er gott flæði inn í vandað og uppgert eldhús. Eldhúsið er einstaklega smekklegt, með miklu skápaplássi, góðu vinnuplássi og stein á borðum, setu aðstaða er við innréttinguna. Fallegt útsýni er úr eldhúsi til suðurs og vesturs.
Á hæðinni er einnig svefnherbergi og uppgert gestasalerni með sturtu.
Bílskúr er veglegur, gott geymsluloft inn af honum (en einnig yfir holi við inngang), heitt og kalt vatn, ný bílskúrshurð.
Á neðri hæð eru þrjú svefnherbergi, stórt opið rými, baðherbegi, þvottahús, og pallur.
Hjónaherbergið er veglegt, inn af því er fataherbergi. Barnaherbergin eru einnig í góðri stærð og vel skápum búin. Þar er einnig opið og notalegt rými sem í dag er nýtt sem sjónvarpshorn/kósýstofa, sem gefur fjölskyldunni gott aukarými til samveru. Baðherbergið er afar veglegt búið baðkari og góðri sturtuaðstöðu, flísalagt í hólf og gólf og hefur verið tekið í gegn á mjög smekklegan hátt. Pallurinn er afgirtur með skjólgirðingu sem veitir mikið næði.
Þvottahús er einnig á neðri hæðinni en úr því er útgengt út í garð að suðvestanverðu.
Gólfefni: parket hefur verið pússað og lítur því vel út flísar á votrýmum.
Hér er á ferðinni einstök eign í fjölskylduvænu og eftirsóttu umhverfi. Stutt er í grunn- og leikskóla, auk þess sem golfvöllur er í þægilegu göngufæri. Eignin hentar því sérstaklega vel fjölskyldum sem kunna að meta gott nærumhverfi, útivist og þægilega staðsetningu.
Nánari upplýsingar veitir Héðinn Birnir Ásbjörnsson Lögg. fasteignasali, í síma 848 4806, tölvupóstur hedinn@fastborg.is.
Með undirritun sinni á þetta söluyfirlit staðfestir seljandi/seljendur að efni þess sé rétt samkvæmt hans/þeirra bestu vitund. Kaupandi/kaupendur staðfestir/staðfesta með áritun sinni á þetta söluyfirlit að hann/þeir/þau hafi kynnt sér efni þess.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. okt. 2015
49.700.000 kr.
51.500.000 kr.
242 m²
212.810 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026