Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1960
svg
180,4 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 8. september 2026 kl. 17:15 til 17:45

Opið hús: Ásgarður 26 2 EIGNIR , 108 Reykjavík. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 8. september 2026 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Lýsing

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölum Ásgarð 26, 108 Reykjavík:

Um er að ræða tvær eignir hver með sitt fastanúmer í einstaklega fallegu og vel staðsett endaraðhús á þremur hæðum á frábærum stað í Fossvoginum. Á fyrstu og annari hæð er 4ra herbergja íbúð, birt stærð 132,2 fm. Í kjallara er 2ja herbergja íbúð, birt stærð 48,2 fm. Heildarstærð samkvæmt þjóðskrá er 180,4 fm. Eignirnar seljast saman. Húsið hefur verið mikið endurnýjað að utan sem innan. Stutt er í grunn- og leikskóla og ýmsa alhliða þjónustu.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Eign 0101 - Fastanúmer 203-6218 - Birt stærð samkvæmt þjóðskrá 132,2 fm:

Skipulag eignar:

Fyrsta hæð: Anddyri, stigagangur, stofa / borðstofa, eldhús og gestasalerni. Önnur hæð: Þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gangur og geymsla(skápur). Kjallari: Í kjallara er sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús, anddyri og stigagangur. Garðhýsi ca. 9 fm á lóð fylgir þessari íbúð. 

Nánari lýsing: 
Fyrsta hæð:

Anddyri: Fatahengi, hvítur veggskápur, flísar á gólfi. 
Stofa / borðstofa: Rúmgóð og björt, útgengi út á suðursvalir með flísum, parket á gólfi. 
Eldhús: Rúmgott, hvít innrétting og laus eyja með skúffum, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn, helluborð, flísar á vegg, borðkrókur, parket á gólfi. 
Gestasalerni: Endurnýjað 2020. Inn af forstofu, hvít innrétting með skúffum, upphengt salerni, gólfhiti, flísar á gólfi og salerniskassa. 
Stigagangur: Stigi upp á efri hæð, ullarteppi á gólfi. 

Önnur hæð: 
Hjónaherbergi: Rúmgott, innbyggðir fataskápar, útgengi út á suðursvalir með flísum, korkur á gólfi. 
Svefnherbergi 2: Rúmgott, innbyggðir fataskápar, útgengi út á suðursvalir með flísum, korkur á gólfi. 
Svefnherbergi 3: Rúmgott, fataskápur, korkur á gólfi. 
Baðherbergi: Endurnýjað 2020. Fallega innréttað baðherbergi, hvít innrétting og speglaskápar, innbyggður skápur ofan við salerni, walk in sturta með innbyggðum blöndunartækjum, gólfhiti, fallegar flísar á veggjum og gólfi. 
Gangur: Komið er upp í teppalagðan gang, geymsluskápur í enda gangsins. 

Í kjallara: 
Sérgeymsla: 8,1 sérgeymsla (merkt 0002), málað gólf.

Vefslóð á eignina: Smellið hér. 

Eign 0001 - Fastanúmer 203-6217 - Birt stærð samkvæmt þjóðskrá 48,2 fm:

Skipulag eignar: 
Forstofa, stofa / borðstofa, eldhús, hjónaherbergi og baðherbergi. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús, anddyri og stigagangur.

Nánari lýsing: 
Kjallari:

Forstofa: Með fatahengi, parket á gólfi. 
Stofa / borðstofa: Rúmgóð, parket á gólfi. 
Eldhús: Hvít innrétting, eldavél, vifta, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott, fataskápur, útgengi út í suðurgarð, parket á gólfi. 
Baðherbergi: Endurnýjað 2020. Hvít innrétting og speglaskápur, walk in sturta, upphengt salerni, fallegar flísar á veggjum og gólfi. 
Sérgeymsla: 1,5 fm sérgeymsla (merkt 0003), málað gólf. 

Vefslóð á eignina: Smellið hér. 

Sameign í kjallara:
Anddyri: Flísar á gólfi. 
Þvottahús: Rúmgott, flísar á gólfi. 
Stigagangur: Stigi upp í íbúð á fyrstu hæð, ullarteppi á gólf. 

Húsið: Ásgarður 26-32 er steinsteypt hús sem byggt er 1960. Gólfhiti er í íbúð í kjallara, anddyri og þvottahúsi í kjallara. Á fyrstu hæð er gólfhiti á salerni og baðherbergi á annarri hæð. Íbúð í kjallara er ekki niðurgrafin. Innanhúss arkitektinn Guðrún Atladóttir hefur teiknað flestar breytingar sem gerðar hafa verið á eignunum. 
Lóð: Sameiginleg lóð fyrir báðar íbúðirnar á baklóð framan við Ásgarð 26. 
Staðsetning: Smellið hér. 

Að sögn eiganda er búið að endurnýja eignirnar mikið að innan sem utan s.s:
* 2022-2023 Útveggir viðgerðir og steinaðir. 
* 2022-2023 Nýjir gluggar og gler.
* 2022-2023 Nýjar svalahurðir.
* 2019-2020 Nýtt skólp (Undir húsi og út í garð).
* 2019-2020 Nýjar neysluvatnslagnir.
* 2020 Gólfhiti í kjallara (Ekki í geymslum í kjallara).
* 2020 Öll baðherbergi endurnýjuð í hólf og gólf.
* 2020 Ný ullarteppi á stigum og gang á annarri hæð.
* 2020 Nýjar innihurðar (Ekki geymslum).
* 2017 Vesturgafl klæddur.
* 2016 Skipt um járn á þaki.
* 2016 Viðgerð á útitröppum / endursteyptar.
* 2014 Austurgafl klæddur.
* 2013 Ný útihurð á fyrstu hæð.
* 2004 Fyrsta hæð mikið endurnýjuð, nýtt gegnheilt hickory parket og ný eldhúsinnrétting, nýjar flísar á veggjum.
* Rafmagn mjög mikið endurnýjað samhliða öðrum framkvæmdum.

Virkilega fallegar og mikið endurnýjaðar eignir miðsvæðis í borginni þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. 
 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Hólmar Björn Sigþórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík