Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ólafur Árni Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Njörvasund 16

104 Reykjavík

71.700.000 kr.

998.607 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2020623

Fasteignamat

57.450.000 kr.

Brunabótamat

41.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1959
svg
71,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali co FRÓN fasteignamiðlun sýnir eignina s. 897-1212. finnbogi@fron.is

FRÓN fasteignamiðlun kynnir eignina Njörvasund 16, 104 Reykjavík.Eign er í örlítið niðurgröfnum kjallara, fastanúmer F2020623. Kynnum hana ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.  Einstaklega yndislegt að koma í þessa götu. Þess má geta að fyrrverandi eigendur miðhæðar höfðu áður búið á jarðhæðinni. Það hlýtur að segja sitt um þetta hús.
Snotur eign í þríbýli sem var byggt 1959 en hefur verið vel við haldið og er í góðu standi. Einstaklega góðir grannar á mið- og efstu hæð. Sem og í Njörvasundinu.
Íbúðin er skráð 71,8 fm.
Afhending er samkvæmt samkomulag. 
Eignin:
Veggir hússins eru nýuppgerðir að utan. Húsið er ný sprungufyllt og málað. Þak er gott. Allar lagnir í húsinu eru í góðu standi. Nýir plastgluggar eru í þessari íbúð. Öll lóðin er einstaklega falleg og friðsæl með trjám og grasi.
Sérinngangur í forstofu sem er mjög snyrtileg og gólfið flísalagt. Lítil geymsla er við innganginn í forstofuna sem notuð er fyrir sláttuvél og garðáhöld fyrir húsið. Úr forstofu er stigi upp á miðhæð. Úr forstofunni er líka inngangur í sameiginlegt þvottahús þar sem er líka ný rafmagnstafla fyrir allar íbúðir. Í forstofunni er lítil geymsla fyrir íbúðina.
Þegar komið er inn er gengið inná lítinn gang og af honum beint inn í eldhúsið sem er opið. Veggur með lúgugati tengir eldhúsið við stofuna. Allt rými er einstaklega vel nýtt í íbúðinni. Hún er hlýleg og björt.
Stofan er opin fram í ganginn. Af gangi er gengið inn í svefnherbergin tvö. Hurðir í svefnherbergin tvö og baðherbergi eru gamlar en líta vel út.
Í eldhúsi er gömul inntétting sem lítur vel út miðað við aldur. Eldhúsborðið var nýlega lagt með epoxy á plötuna. Eldavél og bakarofn eru nýleg tæki.
Parket er á öllum gólfum íbúðarinnar en flísar í baðherbergi. Parketið er aðeins upphleypt í eldhúsi og nokkrar smáskellur í því þar. Annars lítur parketið vel út.
Á baðherbergi er ný innrétting og hreinlætistæki. Nýr sturtuklefi. Nýr handklæðaofn. Klósett er það eina sem ekki hefur verið endurnýjað á baðherbergi. Klósettið er upphengt og lítur mjög vel út. Lítill skápur með spegli er ofan við vaskinn.
Öll íbúðin er nýmáluð í hólf og gólf.
Gólfhiti er í allri íbúðinni. LED-ljós eru í íbúðinni.
Góð svefnherbergi með mjög góðum fataskápum. 
Grunnskól og leikskóli eru í göngufæri. Örfáar mínútur í leikskóla og um 10 til 15 mínútur að ganga í grunnskóann.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Árni Halldórsson, lögg. fasteigna- og skipasali í síma 618-7272, tölvupóstur: olafur@fron.is - BÓKIÐ EINKASKOÐUN - Get farið með ykkur hvenær sem ykkur hentar -
BÓKIÐ SKOÐUN***********BOOK A VIEWING********UMÓW WIZYTE



Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteigna- skipa og fyrirtækjasali og lögg. leigumiðlari hefur starfað við fasteignasölu í 40 ár og er eigandi af FRÓN fasteignamiðlun. Sérhæfing í sölu fasteigna, hótela, fyrirtækja, skipa, lands og bújarða. Lögn reynsla af veðmötum á fasteignum og fyritækjum. Einnig í fjármálum heimilanna og í rekstri fyrirtækja. Leigumiðlun fasteigna, íbúða og atvinnuhúsnæðis. 

FRÓN fasteignamiðlun

Háaleitisbraut 109, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. ágú. 2018
29.650.000 kr.
36.500.000 kr.
71.8 m²
508.357 kr.
17. nóv. 2017
25.050.000 kr.
34.000.000 kr.
71.8 m²
473.538 kr.
12. mar. 2007
14.690.000 kr.
11.500.000 kr.
71.8 m²
160.167 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

FRÓN fasteignamiðlun

Háaleitisbraut 109, 108 Reykjavík
phone