Opið hús: Lækjargata 28, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 02 03 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 7. september 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Eignin er skráð 79,7 fm og þar af er geymsla skráð 6,8 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með flísar á gólfi og gólhita með góðan yfirhafnaskáp.
Alrými er gott með eldhús, stofu/borðstofu með parket á gólfi. Útgengt á mjög rúmgóðar svalir með svalalokun.
Eldhús með góðri innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi II með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu og baðkar með sturtu. Gólfhiti á baðherbergi.
Þvottahús við forstofu með flísar á gólfi, skolvask og góðar hillur og nýtist einnig sem búr.
Sérgeymsla íbúðar í sameign við hjóla- og vagnageymslu.
Næg bílastæði báðu megin hússins.
Frábær staðsetning við Lækinn og hjarta og miðbær Hafnarfjarðar í göngufæri. Stutt í leik-, grunn- og menntaskóla sem og alla helstu þjónustu. Fallegt útsýni af svölum upp Hamarinn og á Lækinn.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.