Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Sólheimar 15

104 Reykjavík

144.900.000 kr.

654.472 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2021476

Fasteignamat

137.200.000 kr.

Brunabótamat

107.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1986
svg
221,4 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 7. september 2026 kl. 12:15 til 12:45

Opið hús: Sólheimar 15, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 7. september 2026 milli kl. 12:15 og kl. 12:45.

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Falleg og björt 221m² íbúð á efstu hæð í Laugardalnum

- Á efstu hæð með mikilli lofthæð og svölum með frábæru útsýni.
- 3 svefnherbergi með bílskúr og tvennar svalir
- Stutt í leikskóla, skóla, Laugardalinn og helstu þjónustu


Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Orri Hilmarsson astmf. S: í 615-3011 eða orri@palssonfasteignasala.is

Nánari lýsing:

Forstofa: Gengið er upp útitröppur á 2. hæð inn í flísalagða neðri forstofu. Gengið er upp parketlagðann stiga upp á 3. hæð hússins inn í efri forstofu.
Stofa: Stór stofa með arni og gluggum sem hleypa birtu inn í rýmið. Úr stofunni er útgengt á svalir til suðurs. 
Eldhús: Rúmgott eldhús með upprunalegri eldhúsinnréttingu, eyju og skápaplássi. Stórir gluggar sem hleypa birtu inn.
Gangur: Bjartur og rúmgóður gangur tengir saman aðalrými íbúðarinnar og svefnherbergisálmuna. Gluggar efst í milliveggjum hleypa birtu inn á ganginn.
Svefnherbergisálma: Sér aflokanleg svefnherbergisálma með stóru og rúmgóðu fjölskyldurými.
Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpshol með hillum og gluggum sem hleypa birtu inn.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum.
Svefnherbergi II: Rúmgótt og fallegt herbergi með fataskápum.
Svefnherbergi III: Svefnherbergi með hillum og parklögðu gólfi.
Baðherbergi I: Rúmgott fjölskyldubaðherbergi, flísalagt gólf, sturtuklefi, baðkar og skápaplássi.
Baðherbergi II: Gestasnyrting með flísalagt gólf og skápaplássi.
Þvottahús: Flísalagt þvottahús með skápaplássi og plássi fyrir þurrkara og þvottavél.

Nýlegar framkvæmdir skv. seljanda:
Gluggar voru yfirfarnir, lagaðir og málaðir árið 2025
Árið 2025 var þak yfirfarið, þakplötum skipt út, báru splæst í, lofttúðum skipt út og þakið málað tvær umferðir. Þakkantur á framhlið hússins var lagaður. 
Veggir að utan voru múraðir og málaðir árið 2025.


33,8m² bílskúr undir húsinu. Útgengt er úr bílskúr út í garð.
Sameiginleg áhaldageymsla, hitakompa og ruslageymsla.
Eignin er í stuttu göngufæri við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, auk bókasafns, Glæsibæjar, Skeifunnar og Laugardalsins.

Í hluta af kynningarmyndum af íbúðinni hafa verið tölvuteiknuð inn húsgögn til að kynna nýtingu á eigninni.

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Engjateigur 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. okt. 2020
79.200.000 kr.
88.500.000 kr.
221.4 m²
399.729 kr.
14. júl. 2015
51.750.000 kr.
54.500.000 kr.
221.4 m²
246.161 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Engjateigur 3, 105 Reykjavík