Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 68,1 m2 hesthús við Hlíðarþúfur 205 á hesthúsasvæði hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði.
Búið er að fá samþykktar teikningar af kaffistofu í risi og greiða byggingarleyfisgjöld af breytingunni. Samkvæmt samþykktum teikningum er risloftuð um 20,5 m2.
Gert er ráð fyrir 8 stíum í húsinu en í dag eru sex stíur í húsinu.
Sameiginlegt gerði og taðþró.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Endurbætur samkvæmt upplýsingum frá seljanda: Árið 2024 var allt rifið inn úr húsinu og settar nýjar frárennslislagnir og gólfið steypt. Rafmagn endurnýjað. Loft og veggir klæddir með hvítu stáli. Nýjar stíur úr ryðfríu stáli og klæðningu frá Líflandi sett upp.
Loftræstikerfi fylgir eigninni er ekki uppsett.
Hitaveita er í húsinu og var tekin inn í húsið á mars 2026.
Frábærar reiðleiðir og stutt í heiðmörkina. Góð aðstaða er á vegum félagsins t.d. inniaðstaða, stór þjálfunargerði og keppnisvellir sem eru á svæðinu. Mikil uppbygging hefur átt sér stað hjá hestamannafélagu uppá síðkastið. Nýlega hefur verið vígð ný glæsileg reiðhöll með frábærri aðstöðu fyrir félagsmenn. Frábært og öflugt æskulýðs- og fræðslustarf er í félaginu.
Verð kr. 19.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.