Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1988
svg
200,2 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði

Lýsing

Miklaborg og Böddi kynna:

Hverafold 26 – glæsilegt og einstaklega vel skipulagt um 200 fm endaraðhús á einni hæð, með innbyggðum bílskúr og stórum, afgirtum og gróðursælum garði.

Eignin stendur innst í rólegri botngötu á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í Grafarvogi. Húsið er bjart og rúmgott með fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, góðu eldhúsi og glæsilegum stofum sem skiptast niður á þrjá palla. Stórir gluggar, fallegur arinn og bein tenging við skjólgóðan garð skapa einstaklega hlýlegt og notalegt yfirbragð.

Hverafold 26 er eitt þriggja húsa innst í botngötunni og er því lítil sem engin gegnumakstur við húsið. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, sundlaug, íþróttaaðstöðu og alla helstu þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Böddi, löggiltur fasteignasali, í síma 821 6300 eða á netfanginu boddi@miklaborg.is.

Nánari lýsing

Forstofa: komið er inn í rúmgóða og bjarta forstofu með svörtum náttúruflísum á gólfi, gott skápa pláss.

Herbergi við forstofu: Gott og rúmgott herbergi með fataskápum sem nú er nýtt sem sjónvarpsherbergi, en getur einnig nýst vel sem svefnherbergi, gestaherbergi eða vinnuaðstaða.

Gestasnyrting: Inn af forstofu er snyrtileg gestasnyrting með náttúruflísum á gólfi, upphengdu salerni, stórum speglum og skáp.

Eldhús: Rúmgott og bjart eldhús með fallegri hvítri innréttingu, miklu skápa- og vinnuplássi og kvartsborðplötum. Þar er góð aðstaða fyrir stórt matarborð og gluggar hleypa fallegri birtu inn í rýmið.

Tvöfaldur Liebherr-ísskápur með innbyggðum vínkæli og uppþvottavél fylgja eigninni.

Stofur og borðstofa: Einstaklega skemmtilegt og bjart stofurými sem skiptist niður á þrjá palla, með tveimur tröppum á milli. Parket er á gólfum og stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn ásamt því að skapa góða tengingu við garðinn. Fallegur fríhangandi arinn er í miðju rýminu og setur sterkan svip á heimilið. Gott rými er fyrir rúmgóða setustofu, sjónvarpsaðstöðu og borðstofu. Útgengt er á hellulagða verönd og þaðan áfram út í garð.

Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með parketi á gólfi og miklu skápaplássi. Úr hjónaherberginu er hægt að ganga beint út á hellulagða veröndina.

Svefnherbergi: Tvö góð svefnherbergi eru í svefnálmu hússins og nýtast vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuaðstaða. Parket er á gólfum, góður fataskápur er í öðru þeirra.des

Baðherbergi: Mjög fallegt og rúmgott baðherbergi með baðkari, stóru sturturými, upphengdu salerni og góðri innréttingu með tveimur handlaugum. Flísar eru á gólfi og veggjum og falleg lýsing er felld inn á milli flísa sem skapar einkar notalega stemningu þegar dimmir. Þakgluggi hleypir jafnframt mikilli náttúrulegri birtu inn í rýmið.

Þvottahús: Sérstakt og vel skipulagt þvottahús með góðri innréttingu, vaski, skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu. Miéle þvottavél og þurrkari fylgja eigninni.
Bílskúr: Innbyggður bílskúr sem er hluti af skráðum fermetrum eignarinnar. Bílskúrinn er einangraður og þar hefur verið útbúið milliloft sem veitir gott viðbótargeymslupláss.

Bílastæði: Þrjú góð bílastæði eru við húsið auk viðbótarstæða neðan við húsið. Hleðslustöð fyrir rafbíl er við húsið.

Garður: Stór, afgirtur og einstaklega gróðursæll garður með fallegri grasflöt og rúmgóðri, hellulagðri verönd með stóri markísu yfir. Garðurinn er skjólgóður og hefur verið vel hirtur í gegnum árin. Hér hefur verið útbúinn notalegur sælureitur fyrir fjölskylduna og tenging er fyrir rafmagnspott á veröndinni. Frá stofum og hjónaherbergi er bein tenging út á pallinn og í garðinn.

Hér er um að ræða glæsilega og fjölskylduvæna eign á einni hæð þar sem rúmgóðar vistarverur, sérstakt stofurými, góður bílskúr, stór og skjólgóður garður og frábær staðsetning fara einstaklega vel saman.

Allar nánari upplýsingar veitir Böddi, löggiltur fasteignasali, í síma 821 6300 eða á netfanginu boddi@miklaborg.is.

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík