Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Arnór Daði Eiríksson
Vista
einbýlishús

Furuvellir 6

221 Hafnarfjörður

154.900.000 kr.

740.794 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2270672

Fasteignamat

140.000.000 kr.

Brunabótamat

109.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2005
svg
209,1 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 8. september 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Furuvellir 6, 221 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 8. september 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Furuvellir 6 um er að ræða einstaklega fallegt og vel skipulagt 209,1 fm einbýlishús á frábærum stað. Eignin státar af stórum og sólríkum garði með glæsilegum sólpalli, heitum potti og miklu næði.

Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskápum. Þaðan er gengið inn í afar bjart og fallegt alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og opnu eldhúsi.
Eldhúsið er rúmgott með góðu vinnuplássi og miklu skápaplássi. Alrýmið er einstaklega skemmtilegt og myndar hlýlegt hjarta heimilisins.
Þaðan er útgengt á sólpallinn og stórir gluggar veita fallegt útsýni yfir garðinn og mikla birtu inn í rýmið.
Þrjú rúmgóð barnaherbergi, rúmgott hjónaherbergi og baðherbergi.
Baðherbergið er útbúið fallegri innréttingu, baðkari, rúmgóðri „walk-in“ sturtu og handklæðaofni. Við forstofu er einnig gestasalerni.
Þvottahúsið er stórt og vel skipulagt með góðum skápum og nægu vinnuplássi.
Bílskúrinn er snyrtilegur með epoxy-húðuðu gólfi, góðri geymslu og millilofti sem nýtist vel til geymslu.
Garðurinn er með stórum timburpalli, þar sem hluti hans er undir skyggni og búið er að koma fyrir hitara.
Heiti potturinn er staðsettur á afar góðum stað með tilliti til sólar. Garðurinn er einstaklega fallegur með grónum trjám, runnum og grasfleti. Mikið næði er á lóðinni sem eykur enn frekar á gæði hennar.

Hér er um að ræða einstaklega fallega og fjölskylduvæna eign á eftirsóttum stað, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Leikskóli, grunnskóli og önnur þjónusta eru í þægilegu göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir: 
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is 

img
Stefán Rafn Sigurmannsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Ás fasteignasala
Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
img

Stefán Rafn Sigurmannsson

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone

Stefán Rafn Sigurmannsson

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði