Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurbjörg Sigfúsdóttir
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
Helgi Steinar Halldórsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2002
svg
149,4 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Kasa fasteignir 461-2010.

Klettaborg 64 - Góð 4 herbergja, 149,4 fm raðhúsaíbúð á tveimur hæðum með bílskúr á góðum stað á Brekkunni. Við eignina er rúmgóð verönd til vesturs með heitum potti.
Eignin skiptist í:
Neðri hæð: Forstofa, snyrting, eldhús og stofa/borðstofa í opnu rými.
Efri hæð: Hol, baðherbergi með þvottaaðstöðu, 3 svefnherbergi og geymsla.

Neðri hæð:
Forstofa
er með flísum á gólfi og opnu fatahengi. 
Úr forstofu er innangengt í 24 fm bílskúr með flísum á gólfi.
Snyrting er inn af forstofu. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og upphengt salerni. 
Eldhús er með flísum á gólfi. Þar er rúmgóð og vönduð innrétting með ofni í vinnuhæð og plássi fyrir uppþvottavél, ísskáp og örbylgjuofn. 
Stofa/borðstofa eru samliggjandi og í hálfopnu rými með eldhúsi. Þar eru flísar á gólfum og úr stofu er gengið út á rúmgóða, steypta verönd með heitum potti.

Efri hæð:
Svefnherbergin eru þrjú, öll með góðum fataskápum og parketi á gólfum. Úr hjónaherbergi er útgengt út á svalir til vesturs.
Geymsla er með parketi á gólfi. 
Baðherbergi er mjög rúmgott og flísalagt í hólf og gólf. Þar er vönduð innrétting, fjölnota sturtuklefi með baðkari og gufubaði, upphengt salerni og handklæðaofn. Á veggnum gegnt baðinnréttingunni er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 

- Gólfhiti er á allri í búðinni og í bílskúr.
- Heitur pottur og sólpallur til vesturs.
- Þak var lagfært og yfirfarið árið 2026.
- Gler í eldhúsi og stofu hefur verið endurnýjað og sett sólvarnargler. 

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.

Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone