Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Hulduhlíð 11

270 Mosfellsbær

71.900.000 kr.

854.935 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2240842

Fasteignamat

66.950.000 kr.

Brunabótamat

46.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1999
svg
84,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 9. september 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Hulduhlíð 11, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 9. september 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

** Opið hús miðvikudaginn 9. september frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 84,1 m2, 3ja herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi við Hulduhlíð 11 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í forstofu, gang, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahúsi/geymslu. Hellulögð verönd og sérafnotareitur í suðurátt. Frábær staðsetning þar sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, sundlaug, líkamsrækt, golfvöll og fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent

Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp.
Gangur er með parketi á gólfi.
Stofa er opin við eldhús, björt með glugga á tveimur hliðum og parketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á hellulagða verönd í suðurátt.
Eldhús er með flísum á gólfi og L-laga innréttingu með ofni, helluborði og viftu. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2 er inn af forstofu með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með máluðu gólfi, innréttingu með skolvaski, sturtu og salerni. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús er inn af baðherbergi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar og er með dúk á gólfi

Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2027 er kr. 68.800.000,-

Verð kr. 71.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ