Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson
Sveinbjörn Rosen Guðlaugsson
Böðvar Reynisson
Vista
lóð

Stífla

861 Hvolsvöllur

320.000.000 kr.

658 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2193303

Fasteignamat

139.727.000 kr.

Brunabótamat

334.180.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
486308,9 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Eignaland kynnir til sölu jörðina Stíflu í Landeyjum. Um er að ræða 120 hektara jörð sem er að stórum hluta í rækt. Á jörðinni stendur mikið endurnýjað 225,2 fm einbýlishús með sex svefnherbergjum ásamt góðum útihúsum. Falleg aðkoma er að jörðinni og býður hún upp á mikla möguleika.

Nánari upplýsingar eru hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is

Íbúðarhús

Einbýlishúsið er 225,2 fm og hefur verið mikið endurnýjað. Húsið stendur á sér eins hektara lóð.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðu plássi. Í forstofu er einnig baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir sturtu.
Alrými hússins er bjart og mjög rúmgott og þar eru eldhús og borðstofa. Inn af alrýminu er stofa ásamt sjónvarpsholi. Skrifstofa er inn af sjónvarpsholi.
Svefnherbergin eru sex talsins og eru þau á sér svefnherbergisgangi ásamt baðherbergi.
Húsið er rúmgott og býður skipulag þess upp á góða nýtingarmöguleika fyrir stóra fjölskyldu.
Falleg aðstaða er í kringum húsið og rúmgott bílastæði.

Jörðin
Stífla er um 120 hektarar að stærð og er landið að stórum hluta í rækt. Einbýlishúsið stendur á sér eins hektara lóð.
Falleg aðkoma er að Stíflu og er jörðin síðasti bærinn á þessum afleggjara, það tekur um 5 mín að keyra að honum frá þjóðvegi.

Útihús
Á jörðinni eru sambyggð fjós og hlaða þar sem í dag er rekið lausagöngufjós með mjaltaþjóni. Byggingarnar eru samkvæmt skráningu HMS samtals um 800 fm og voru byggðar á árunum 1960–1987.
Ástand bygginganna er að mestu leyti ágætt en lítill hluti þeirra þarfnast viðhalds og endurbóta.
Einnig er á jörðinni 283,2 fm vélaskemma, samkvæmt skráningu HMS, byggð árið 2005.

Stífla er áhugaverð 120 hektara jörð í Landeyjum með mikið endurnýjuðu og rúmgóðu íbúðarhúsi, ræktuðu landi og góðri aðstöðu til búrekstrar. Jörð sem býður upp á mikla möguleika og er með fallega aðkomu.
Jörðin verður seld án véla og bústofns.

Nánari upplýsingar er hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Jens Magnús Jakobsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignaland
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
Eignaland

Eignaland

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
phone
img

Jens Magnús Jakobsson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. ágú. 2023
44.117.000 kr.
120.000.000 kr.
1132.2 m²
105.988 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignaland

Eignaland

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
phone

Jens Magnús Jakobsson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi