Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson
Sveinbjörn Rosen Guðlaugsson
Böðvar Reynisson
Vista
fjölbýlishús

Áshamar 48

221 Hafnarfjörður

71.500.000 kr.

831.395 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2527862

Fasteignamat

66.600.000 kr.

Brunabótamat

63.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2024
svg
86 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Lyfta
Opið hús: 7. september 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

Eignaland kynnir fallega og einstaklega vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á jarð hæð að Áshamri 48 í Hamraneshverfi Hafnarfjarðar. Eignin er skráð 86 fm, þar af er 7,2 fm sérgeymsla. Tvö góð svefnherbergi, rúmgott og bjart alrými, fallegt eldhús og útgengt á verönd og sérafnotaflöt. Eignin er í nýlegu Svansvottuðu fjölbýlishúsi með lyftu. Frábært útsýni er úr alrími eignarinnar yfir Reykjanesfjallgarðinn.
Falleg eign á góðum stað.

Aukin lofthæð 2,66 m.
Bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð(leigt).


Nánari uppllýsingar eru hjá Jens Magnúsi lgf í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is

Nánari lýsing

Forstofa:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðu skápaplássi. Frá forstofu liggur gangur að öðrum rýmum íbúðarinnar.
Eldhús / alrými:
Eldhús og stofa mynda einstaklega fallegt og bjart alrými. Eldhúsið er með vönduðum dökkum innréttingum, góðu skápa- og vinnuplássi og stórri eyju sem tengir eldhúsið vel við borðstofu og stofu. Innréttingarnar gefa rýminu hlýlegt og nútímalegt yfirbragð.
Góð aðstaða er fyrir borðstofuborð og er alrýmið rúmgott og vel nýtt. Stórir gluggar hleypa góðri birtu inn í rýmið.
Stofa:
Stofan er björt og opin við eldhús og borðstofu. Úr alrýminu er útgengt á timburverönd og sérafnotaflöt við húsið.
Svefnherbergi:
Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi og annað svefnherbergi nýtist vel sem barna-, gesta- eða vinnuherbergi.
Baðherbergi:
Baðherbergið er einstaklega snyrtilegt og vandað. Flísar eru á gólfi og veggjum og þar er rúmgóð sturta með glerþili, upphengt salerni og falleg innrétting með skúffum og speglaskáp. Handklæðaofn er á baðherbergi.
Þvottaaðstaða er innan baðherbergis með góðu plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla:
Sérgeymsla eignarinnar er 7,2 fm og er staðsett í sameign hússins.

Húsið
Áshamar 48 er hluti af húsakjarna Áshamars 42–48. Byggingarnar eru Svansvottaðar og hönnun þeirra tekur meðal annars mið af góðri loftræstingu, hljóðvist, orkunýtni og nýtingu dagsbirtu.
Lyfta er í húsinu og sér loftskiptakerfi er innan íbúða. Í kjallara eru sérgeymslur auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Húsin Áshamar 42–48 deila einnig bílakjallara.
Staðsetning
Áshamar 48 er vel staðsett í Hamraneshverfi, nýlegu íbúðahverfi í Hafnarfirði þar sem mikil áhersla hefur verið lögð á tengsl byggðarinnar við náttúruna. 
Eitt af einkennum svæðisins er nálægðin við opin náttúrusvæði. Á vefsvæði Hafnarfjarðarbæjar kemur fram að hverfið liggi í dalverpi þar sem grónar hlíðar og hraun setja sterkan svip á umhverfið.
Nýr leikskóli, Áshamar, er við Áshamar 9 í hverfinu. Hann hefur rekstrarleyfi fyrir allt að 120 börn og leggur meðal annars áherslu á útikennslu og nýtingu náttúrunnar í nærumhverfinu.

Um er að ræða einstaklega snyrtilega og vel skipulagða eign þar sem vandað eldhús, bjart alrými, tvö góð svefnherbergi og góð útiaðstaða mynda skemmtilega heild.
Frábær eign í nýlegu húsi á góðum stað í Hamraneshverfi.


Nánari upplýsingar eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is


 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Jens Magnús Jakobsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignaland
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
Eignaland

Eignaland

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
phone
img

Jens Magnús Jakobsson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. sep. 2024
27.350.000 kr.
67.900.000 kr.
40102 m²
1.693 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignaland

Eignaland

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
phone

Jens Magnús Jakobsson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi