Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1937
svg
202,7 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 6. september 2026 kl. 13:00 til 13:30

Opið hús: Túngata 36A, 101 Reykjavík. Eignin verður sýnd sunnudaginn 6. september 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Túngata 36a í 101 Reykjavík. Glæsilegt parhús á þremur hæðum með möguleika á sér tveggja herbergja aukaíbúð í hluta kjallara. Glæsileg eign á rólegum og góðum stað í Vesturbænum, stutt er í alla helstu þjónustu.

Eignin hefur nýlega gengið í gegnum afar viðamikla og vandaða endurnýjun (2024–2026) þar sem lögð var áhersla á hágæða efnisval, betra flæði og fágun í hverju smáatriði. Hér hefur tekist að sameina virðuleika hússins og nútíma þægindi. Í hluta kjallara er jafnframt möguleiki á snyrtilegri tveggja herbergja íbúð með sérinngangi, bíður uppá frábærar útleigu tekjur.

Húsið skiptist í þrjár hæðir:
Miðhæð: Anddyri, baðherbergi, stofa, borðstofa og eldhús.
Efrihæð: Þrjú svefnherbergi. Þar af eitt sem er hjónasvíta með baðherbergi.
Jarðhæð: Anddyri, Eldhús, Tvö svefnherbergi og þvottahús. Annað herbergið er hægt að nýta sem stofu ef hæðin er nýtt sem auka íbúð.

Helstu framkvæmdir og endurnýjanir að innan:
  • Skipulag og flæði: Veggir í forstofu voru felldir til að stækka rýmið verulega. Við þetta myndaðist frábært flæði inn í húsið og náttúruleg birta fær að njóta sín. Stiginn milli hæða var sömuleiðis tekinn alveg í gegn og glæsilega parketlagður.
  • Gólfefni og hitakerfi: Undirvinna gólfa var unnin af mikilli nákvæmni og öll gólf flotuð. Nýtt gólfhitakerfi var lagt í alla miðhæð hússins til að tryggja jafnan og þægilegan hita, auk þess sem fræst var fyrir gólfhita á völdum svæðum á jarðhæð. 
  • Innréttingar og sérsmíði: Öllum innréttingum í húsinu hefur verið skipt út á síðustu misserum. Á miðhæðinni er stórglæsilegt nýtt eldhús með sérsmíðuðum innréttingum. Á efstu hæð er fataherbergi og skrifstofa fullbúin með nýjum sérsmíðuðum innréttingum, ásamt nýjum skápum í svefnherbergi.
  • Þvottahús: Rýmið var tekið alveg í gegn; skipt var um allar innréttingar og settur upp nýr, sérstaklega stór vaskur sem eykur notagildi rýmisins til muna.
  • Lagnir, rafmagn og baðherbergi: Allt rafmagn í húsinu var yfirfarið ítarlega og endurnýjað eftir þörfum. Hitaveitugrind var yfirfarin og lagfærð, og allar hitalagnir yfirfarnar. Neysluvatnslagnir í kjallara voru endurnýjaðar. Öll salerni og sturtutæki í húsinu voru yfirfarin og endurnýjuð eftir þörfum.
  • Gluggatjöld: Flest öllum gardínum í húsinu var skipt út fyrir nýjar og vandaðar lausnir.

Lóðarframkvæmdir: Garðurinn var tekinn í gegn, blómabeð voru hækkuð og römmuð inn með fallegum hleðslusteinum, byggður var pallur undir nýtt 3 hólfa sorptunnuskýli. Útveggur lóðar var múruður og lagfærður, einnig var múraður kanntur og er garður hússins glæsilegur.


Nánari upplýsingar veitir Guðlaugur Ingi í síma 864-5464 eða með tölvupósti á netfangið gudlaugur@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. nóv. 2023
115.950.000 kr.
155.000.000 kr.
202.7 m²
764.677 kr.
28. mar. 2019
94.300.000 kr.
114.000.000 kr.
202.7 m²
562.407 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík