Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel staðsett 5 herbergja endaíbúð með timburverönd og sérinngangi á jarðhæð við Klapparhlíð 28 í Mosfellsbæ. Eignin skráð 112,6 m2, þar af íbúð 105,9 m2 og geymsla 6,7 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, gang, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er í sameign. Um er að ræða vel skipulagða og bjarta íbúð á vinsælum stað í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, leikskóla, sundlaug, líkamsræktarstöð, golfvöll og vinsæl útivistarsvæði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Gangur er með parketi á gólfi.
Stofa er með parketi í gólfi. Úr stofu er útgengt á afgirta timburverönd í suðvesturátt.
Eldhús er með L-laga innréttingu og borðkrók, flísar á gólfi. Í innréttingu er blástursofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir Amerískum ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 4 er inn af forstofu með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, handlaug, salerni og baðkari með sturtuaðstöðu. Inn af baðherbergi er þvottahús.
Þvottahús er með flísum á gólfi.
Sérgeymsla í sameign á 2. hæð. Skráð 6,7 m2.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.
Verð kr. 91.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.