Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
raðhús

Laxatunga 72

270 Mosfellsbær

128.900.000 kr.

803.115 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2331168

Fasteignamat

113.150.000 kr.

Brunabótamat

98.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2016
svg
160,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 8. september 2026 kl. 17:20 til 17:50

Lýsing

** Opið hús þriðjudaginn 8. september frá kl. 17:20 til 17:50 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir:  Fallegt og vel skipulagt 160,5 m2 endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Laxatungu 72 í Mosfellsbæ. Birt stærð eignarinnar er 160,5 m2, þar af raðhús 133,7 m2 og bílskúr 26,8 m2.
Húsið skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, rúmgóða sjónvarpsstofu (svefnherbergi á teikningu, hægt að breyta aftur í svefnherbergi), baðherbergi, þvottahús/geymslu, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr, Geymsluloft er í bílskúr. 
Gott skipulag og fallegar innréttingar frá HTH. Mikil lofthæð sem gerir eignina bjarta og skemmtilega. Stór afgirt timburverönd með heitum potti. Stórt steypt bílaplan.

Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit strax


Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskápum.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með mikilli lofthæð og parketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg L-laga innrétting. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, helluborð og bakaraofn. Gert er ráð fyrir Amerískum ísskáp í innréttingu.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, "walk-in" sturtu, handklæðaofni og vegghengdu salerni.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á timburverönd.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Sjónvarpsstofa (svefnherbergi og sjónvarpshol á teikningu) er með parketi á gólfi.
Þvottahús/geymsla er í rúmgóðu rými með stórri innréttingu með miklu skápaplássi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er innangengt inn í bílskúrinn.
Bílskúr er með epoxýmálningu á gólfi og mikilli lofthæð. Rafdrifinn bílskúrshurðaopnari og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Búið er að setja upp gott geymsluloft í bílskúr.

Seljandi lætur klára að klæða neðst á skjólvegg og klárar að klæða og byggja tröppu upp í heitan pott.

Verð kr. 128.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. feb. 2016
23.650.000 kr.
40.000.000 kr.
160.5 m²
249.221 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ