Lýsing
Miklaborg kynnir: Glæsilegt 269,3 fm nýtt endaraðhús við Vorbraut 29 í Garðabæ. Eignin er 6 herbergja á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Raðhúsin er á frábærum útsýnisstað í Hnoðraholti sem er nýtt og spennandi hverfi í Garðabæ með útsýni yfir golfvöllinn. Eignin er með gólfhitastýringu og loftskiptikerfi. Góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, helstu stofnæðar og fjölbreytt útivistarsvæði.
Tveir afhendingamöguleikar eru í boði, annarsvegar fullbúið hús að innan og fullbúin lóð og svo hinsvegar tilbúið til innréttinga, lóð frágengin að framan, hellulagt með hitalögn og grófjöfnuð að aftan.
Verð tilbúið til innréttinga: 215.000.000.-
Verið fullbúið að innan sem utan: 249.000.000.-
Nánari upplýsingar veitir Ingimundur Ingimundarson, löggiltur fasteignasali í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Vorbraut 31
Um er að ræða 6 herbergja raðhús á tveimur hæðum, 252,3 fm að stærð.
Eignin skiptist eftirfarandi : Efri hæð 104,3 fm, bílskúr 22,7 fm, neðri hæð 125,3 fm.
Efri hæð - forstofai, bílskúr, stórt forstofuherbergi þaðan sem útgengt er út á verönd, gangur, salerni, opið rými með mikilli lofthæð og telur stofu, borðstofu og eldhúsi með eyju þaðan sem gengið er inn í búr. Frá eldhúsi er gengið út á svalir með stórbrotnu útsýni.
Neðri hæð - gangur, stórt þvottaherbergi, sjónvarpshol/herbergi, baðherbergi, tvö stór svefnherbergi og hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi. Frá hjónasvítu er útgengt út á verönd.
Nánari upplýsingar veita:
Ingimundur Ingimundarson, löggiltur fasteignasali í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is
Sæþór Ólafsson, löggiltur fasteignasali í síma 855-55550 eða saethor@miklaborg.is