Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Álagrandi 8

107 Reykjavík

69.500.000 kr.

869.837 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2025160

Fasteignamat

67.850.000 kr.

Brunabótamat

41.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1979
svg
79,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 9. september 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Álagrandi 8, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 9. september 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna: Álagrandi 8 íbúð 402, Reykjavík. Íbúðin er í dag 2ja herbergja útsýnis endaíbúð á efstu hæð, möguleiki er á að hafa 3ja herbergið og þá tekið af stofu. Vel skipulögð eign á besta stað með fallegu útsýni til vesturs og suðurs. Stutt er í alla þjónustu, verslanir og skóla. Íbúðin skipar: forstofu, hol, eldhús, baðherbergi, svefnhverbergi, stofur. Út úr stofu eru útsýnis svalir sem snúa til suð-vesturs og ná yfir alla íbúðina. 

Íbúðin er skráð 79,9 fm hjá HMS og er sérgeymsla í sameign 8 fm þar af. 

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is

Nánari lýsing eignar: 

Gengið er inn í mjög rúmgóða forstofu.
Úr forstofu er komið inn í hol með fataskápum sem leiða þig í allar vistaverur íbúðarinnar.
Stofan er stór og rúmgóð með gluggum á tvo vegu. Úr stofui  er útgengt út á suð-vestur svalir sem eru eftir allri hlið íbúðarinnar. Mikið og gott útsýni.. 
Eldhúsið er innréttað sitt hvoru megin við umferðarrýmið, góður borðkrókur í miðju rýminu
Baðherbergið er rúmgott með góðri snyrtiaðstöðu, baðkari. Á baði er einnig góðir skápar undir handlaug og speglar fyrir ofan með skápum til hliðar og ljósum. Á baði er tenging fyrir þvottavél, en einnig er þvottahús í sameign í kjallara.
Svefnherbergið er mjög rúmgott og bjart með góðum fataskápum.  
Sér geymsla er í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu og sameiginlegu þurrkherbergi. 
Næg bílastæði eru við húsið. 
Í húsinu er starfrækt virkt húsfélag.

Álagrandi 8, 107 Reykjavík, hýsir 14 íbúðir. Húsið er 4 hæðir með 4 íbúðum á hæð fyrir utan 1. hæð en þar eru 2. íbúðir. Lóðin Álagrandi 8 er hluti af heildarlóðinni Álagrandi 8-12. Á lóð norðan megin við hús eru 49 bílastæði í sameign allra í húsinu.  Lóðin er 3.639 fm leigulóð til 75 ára talið frá 1. október 1978. Rekstur og umhirða lóðar skiptist að öðru leiti jafnt milli eigenda hússins, en viðhalds kostnaður skv. hlutfallstölu lóðar.

Um er að ræða einstaklega skemmtilega íbúð með frábæru útsýni, sem er vel skipulögð og á mjög vinsælum rólegum stað í vesturbæ Reykjavík.
Vesturbærinn er gróið, gamalt hverfi með langa sögu. Hverfið liggur að Seltjarnanesi í vestri en að miðborginni í austri og er hverfið að mörgu leyti mjög tengt miðborginni. Nálægðin við sjóinn er eitt af helstu sérkennum hverfisins. Gönguferðir meðfram Ægissíðunni er mjög vinsælar meðal íbúa hverfisins enda útsýnið fagurt. Hverfið státar af Háskóla Íslands, Vesturbæjarlaug, Háskólabíói, Veröld- hús Vigdísar, Myndlistaskólanum í Reykjavík, auk KR- heimilisins auk fjölda annarra stofnana og fyrirtækja. Frábær staðsetningu og stutt er í leik-, grunnskóla og alla þjónustu. 
Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík