Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingibjörg Þórðardóttir
Þórður S. Ólafsson
Ólafur Már Ólafsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2013
svg
169 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:

Mjög falleg, björt og vel skipulögð endaíbúð með sérinngangi á 2. hæð á eftirsóttum stað við Ljósakur í Garðabæ. Íbúðinni fylgir 53,4 fermetra rými á jarðhæð/kjallara með gluggum í tvær áttir og góðri lofthæð (2,54m) sem hefur verið innréttað sem íbúðarrými auk þess sem gluggar á rýminu hafa verið stækkaðir.   
Eignin er samtals skráð 169,9 fm og skiptist í 103,2 fm aðalíbúð á 2. hæð, 13,3 fm sérgeymslu og 53,4 fm aukaíbúð í kjallara (skráð sem geymsla).

Úr íbúðinni er afar fallegt útsýni til suðvesturs, gluggar eru á þremur hliðum sem gerir íbúðina einstaklega bjarta. Íbúðin er jafnframt með aukinni lofthæð (um 2,65 m),
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, tvö rúmgóð svefnherbergi samkvæmt teikningu, auk þriðja svefnherbergisins sem útbúið hefur verið inn af stofu, baðherbergi og þvottahús.

Nánari lýsing: 
Anddyri: Gegnheilt parket er á gólfi, nýlegur fataskápur.
Stofa og borðstofa: Bjart og fallegt alrými með stórum gluggum og fallegu útsýni til suðvesturs, gegnheilt parket á gólfi. Útgengi á rúmgóðar og skjólgóðar svalir með timburgólfklæðningu, síðdegis og kvöldsól er á svölunum.
Eldhús: Fallegt eldhús með hvítri, mattri sprautulakkaðri innréttingu, góðu skápaplássi og hvítri kvarts plötu. Eldunareyja sem hægt er að sitja við er áföst við vegg, kvartsborðplata klæðir eyju niður í gólf.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðu skápaplássi og gegnheilu parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Bjart og rúmgott herbergi með gegnheilu parketi á gólfi.
Auka svefnherbergi: Þriðja svefnherberginu hefur verið bætt við inn af stofu, parket á gólfi og góður fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, eikarinnrétting undir vaski, spegill með innbyggðri lýsingu, hvítur skápur, upphengt salerni, baðkar með flísalagðri hlið og sturtutækjum, handklæðaofn, gólfhiti.
Þvottahús: Inn af baðherbergi er þvottahús með lítilli eikarinnréttingu og skolvaski. Flísar á gólfi, hvítur skápur, gólfhiti.

Íbúð í kjallara (skráð sem geymsla)
Íbúðin skiptist í eldhús og stofu í opnu rými með harðparketi á gólfi. Inn af stofu er svefnherbergi með parketi á gólfi. Baðherbergið er með sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél og flísum á gólfi og hluta veggja. Íbúðin er endaíbúð með gluggum á tveimur hliðum og því einstaklega björt. Lofthæð er 250 cm.
Íbúðin var endurnýjuð árið 2024. Veggir voru slípaðir og málaðir, gólflistar endurnýjaðir, ný eldhúsinnrétting sett upp og nýr sturtuklefi ásamt innréttingu á baðherbergi. Svefnherbergi var stúkað af með gifsveggjum, rennihurð sett upp og hljóðeinangrun bætt á milli íbúða.
 
Tveir inngangar eru inn í sameignina, annars vegar um stigahús og hins vegar á suðurhlið hússins sem er nýttur af aukaíbúðinni.
Sameignin er snyrtileg og var máluð haustið 2024, bæði gólf og veggir. Fyrir aftan húsið er fallegur garður með grasflöt.

Íbúðinni fylgir rúmgóð sérgeymsla í kjallara sem er 12,4 fermetrar.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla með útgengi á lóð. 

Eigninni fylgir merkt bílastæði og einnig eru gestastæði við húsið.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á fallegum útsýnisstað þaðan sem stutt er í leikskóla, Hofsstaðaskóla, Garðaskóla, FG, íþróttasvæði Stjörnunnar, sundlaug Garðabæjar, verslun Krónunnar og út á aðalbrautir.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is
 

Híbýli fasteignasala

Híbýli fasteignasala

Kringlunni 4-6 - 9 hæð, 103 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. maí. 2024
97.700.000 kr.
112.000.000 kr.
10201 m²
10.979 kr.
9. nóv. 2018
56.000.000 kr.
72.500.000 kr.
169 m²
428.994 kr.
12. jún. 2013
12.850.000 kr.
41.500.000 kr.
115.6 m²
358.997 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Híbýli fasteignasala

Híbýli fasteignasala

Kringlunni 4-6 - 9 hæð, 103 Reykjavík
phone