Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Lilja Valþórsdóttir
Hákon Ólafur Hákonarson
Vista
fjölbýlishús

Nónvarða 8

230 Reykjanesbær

64.900.000 kr.

377.985 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2090115

Fasteignamat

73.700.000 kr.

Brunabótamat

82.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1967
svg
171,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu rúmgóða 4ra herbergja 171,7 fm efri sérhæð í tvíbýlishúsi við Nónvörðu 8 í Reykjanesbæ þar af 26,5 fm bílskúr. Um er að ræða sérlega bjarta íbúð á frábærum stað þar sem stutt er í skóla og hina ýmsu þjónustu. 

Nánari lýsing:
Forstofan er rúmgóð en stigi er upp á hæðina og hefur dúk á gólfi.
Stofan er rúmgóð og björt, út frá stofu er gengið út á suðvestur svalir.
Eldhús hefur um 10 ára gamla innréttingu, dúk á gólfi og borðkrók.
Herbergin eru þrjú með parketi á gólfum, fataskápar í öllum herbergjum. Útgengt út á suðursvalir úr hjónaherbergi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og hluta af veggjum en þar er rúmgóð sturta ásamt hvítri innréttingu og handklæðaofni.
Bílskúrinn er skráður 26,5 fm og þarfnast viðhalds.
Sameiginlegt þvottahús á neðri hæð.

Gluggar hafa verið endurnýjaðir, skolp endurnýjað 2017 og ofnar og lagnir hefur verið endurnýjað.
Eignin þarfnast endurbóta að innan.

**Eignin er laus við kaupsamning**

Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
hakon@prodomo.is

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
lilja@prodomo.is 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

 

img
Hákon Ólafur Hákonarson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
PRODOMO fasteignasala
Hafnargötu 15, 230 Keflavík
PRODOMO fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
phone
img

Hákon Ólafur Hákonarson

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
PRODOMO fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
phone

Hákon Ólafur Hákonarson

Hafnargötu 15, 230 Keflavík