Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2006
87,2 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Stekkjartún 22 – 101
* Eignin getur verið til afhendingar fljótlega
Um er að ræða vel skipulagða 3-4 herbergja íbúð á jarðhæð í austurenda með sérinngangi. Stærð eignarinnar er 87,2 fm. skv. upplýsingum frá HMS.
Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og geymslu innan íbúðar sem nýtist sem herbergi í dag, eldhús og stofa í opnu rými með útgengi út á verönd til suðurs. Sameiginleg geymsla í sameign.
Forstofa er með flísum á gólfi og gólfhita. Góður fataskápur í forstofu.
Gengið er úr forstofu inn í þvottahús þar sem flísar eru á gólfi og gólfhiti. Hvít innrétting með vask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi var gert upp árið 2026 og eru dökkleitar flísar á gólfi og ljósar flísar í walk-in sturtu. Ljós viðarlituð innrétting, upphengt salerni og handklæðaofn.
Svefnherbergi eru þrjú en þar af er eitt skráð sem geymsla á teikningum. Í herbergjum er parket á gólfi og fataskápur í tveimur.
Stofa er nokkuð rúmgóð með parketi á gólfi. Stór gluggi og þaðan er ágætis útsýni til suðurs. Gengið er úr stofu út á fallega verönd til suðurs.
Eldhús er með eikarinnréttingu og parket á gólfi. Stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu, uppþvottavél og ísskápur fylgja með. Nýlegt helluborð í eldhúsi.
Annað:
-Stutt í leik- og grunnskóla
-Ljósleiðari
-Gólfhiti að hluta
-Nýlegt sorpgerði fyrir framan húsið
-Tvær sameiginlegar rafhleðslustöðvar á bílastæði
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is
halla@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. jún. 2011
14.200.000 kr.
19.700.000 kr.
87.2 m²
225.917 kr.
15. feb. 2007
13.720.000 kr.
17.800.000 kr.
87.2 m²
204.128 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026