Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Vista
fjölbýlishús

Auðarstræti 13

105 Reykjavík

63.900.000 kr.

952.310 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2011943

Fasteignamat

57.600.000 kr.

Brunabótamat

37.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1938
svg
67,1 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 15. september 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Auðarstræti 13, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: kjallari. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 15. september 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:

Auðarstræti 13, 105 Reykjavík

Björt og vel skipulögð tveggja herbergja kjallaraíbúð við Auðarstræti 13, í fallegu og grónu hverfi, Norðurmýrinni. Auðvelt aðgengi er að stofnbrautum og íbúðin í göngufæri við helstu þjónustu. Reglulegu viðhaldi á húsinu hefur verið sinnt og endurbætur gerðar á eigninni sjálfri. Meðal annars var baðherbergi endurnýjað í heild árið 2018, skólp og drenlögnum skipt út og farið í sprunguviðgerðir a ytra birði hússins. Allt unnið af viðurkenndum fagaðilum. Sameiginlegt þvottahús er á sömu hæð og íbúðin. Eignin getur verið afhent með eða án leigjanda.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 67,1 m². Þar af er íbúð í kjallara 64,2 m², merkt 01-0001, og geymsla 2,9 m², merkt 01-0004. Fastanúmer eignarinnar er 201-1943 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Lýsing og skipulag eignar:
Hol/forstofa 
með fataskáp.
Eldhús er með hvítri innréttingu, ofni, helluborði, háfi og uppþvottavél. Gluggar eru á tvo vegu og gott vinnu- og skápapláss er í eldhúsinu. Uppþvottavél fylgir eigninni og ísskápur með frysti getur fylgt samkvæmt samkomulagi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi og tengjast eldhúsi. Stofan er með glugga á tvo vegu.
Svefnherbergi er með rúmgóðum fataskápum og glugga sem snýr að garði.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu og vaski, upphengdu salerni, sturtu með glerþili, handklæðaofni og glugga. Gólfhiti er á baðherberginu og vifta.
Þvottahús er sameiginlegt og á sömu hæð og íbúðin. Þar hefur hver íbúð aðstöðu fyrir eigin þvottavél. Þvottavél getur fylgt samkvæmt samkomulagi.
Gólfefni: Parket er á meginrýmum og svefnherbergi en flísar eru á baðherbergi.

Bygging, lóð og aðkoma:
Húsið er steinsteypt fjölbýlishús, byggt árið 1938. Lóðin er 556,4 m² leigulóð og er garður sameiginlegur, með þeim réttindum og eignaskiptingu sem fram kemur í þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu og lóðarleigusamningi. Bílastæði eru við götu.

Framkvæmdir að sögn seljenda:
2024-2025: Sprunguviðgerðir á ytra byrði hússins.
2021: Frágangur á plastdúk við bakhlið hússins og niðurfallsrör á framhlið endurnýjað.
2019: Krani við kaldavatnsinntak endurnýjaður og þrír kranar á hitaveitugrind hússins endurnýjaðir.
2018: Baðherbergi íbúðarinnar endurnýjað í heild. Veggir svefnherbergi lagfærðir og endurbyggðir, auk sprunguviðgerða á útvegg. Gólf jöfnuð eftir þörfum og nýtt parket lagt í stofu og svefnherbergi ásamt nýjum listum og gereftum. Sprunguviðgerðir gerðar á ytra byrði hússins og skorsteinn klæddur með álklæðningu.
2015: Skólplagnir og drenlagnir umhverfis húsið endurnýjuð.
Um 2000: Gluggar og gler, ofnar og ofnalagnir endurnýjuð.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

img
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valný fasteignasala
Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
phone
img

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. sep. 2016
22.750.000 kr.
27.800.000 kr.
67.1 m²
414.307 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
phone

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær