Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Hringhamar 25 (605)

221 Hafnarfjörður

129.900.000 kr.

863.123 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2528197

Fasteignamat

107.300.000 kr.

Brunabótamat

101.160.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
150,5 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Miklaborg og Böddi kynna: Stórglæsilega 150,5 fm þakíbúð með víðáttumiklum þaksvölum, þremur svefnherbergjum, hjónasvítu með sérbaðherbergi og tveimur sérmerktum stæðum í bílageymslu. Stórbrotið útsýni og gert ráð fyrir heitum potti á þaksvölum. mjög gott útsýni .


Verð 129,9 milljónir króna.


Kjartan ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í símia 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

NÁNARI LÝSING:

Eignin skiptist í anddyri/hol með góðu skápaplássi. Inn af anddyri er lítill gangur sem opnastinn í alrými. Þar eru á aðra hönd hjónasvíta með sér baðherbergi með sturtu og góðum skápum. Stórt barnaherbergi með fataskáp. Þvottahús með góðri innréttingu og baðherbergi með innréttingu og sturtu. Í alrými er eldhús með eyju, stofa og borðstofa og þar er gengið inn í 3ja svefnherbergið, sem er rúmgott með skápum. Íbúðinni fylgja tvennar svalir. Þaksvalir eru um 80 fm. og opnar mót norðri, vestri og suðri. Þar er gert ráð fyrir heitum potti. Minni svalir snúa í austur og eru með sandblásnu gleri. Eigninni fylgja tvö sérmerkt bílastæði. Íbúðin afhendist fullbúin án gólfefna. Vandaðar innréttingar frá Arens. Sölu- og þjónustuaðili er Ormsson og eldhústæki frá AEG.

Nánari lýsing

Anddyri/hol: Rúmgott og bjart með góðu skápaplássi. Inn af anddyri er gangur sem leiðir inn í aðalrými íbúðarinnar.

Eldhús, stofa og borðstofa: Glæsilegt og opið alrými með góðri lofthæð og mikilli birtu. Eldhúsið er með vandaðri Arens-innréttingu og eyju sem tengir rýmin fallega saman. Eldhústæki eru frá AEG og sölu- og þjónustuaðili þeirra er Ormsson.

Hjónasvíta: Rúmgóð hjónasvíta með góðum fataskápum og sérbaðherbergi með innréttingu og sturtu.

Svefnherbergi II: Stórt og bjart barnaherbergi með fataskáp.

Svefnherbergi III: Rúmgott herbergi með góðum fataskápum, inn af alrými.

Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með vandaðri innréttingu og sturtu.

Þvottahús: Sér þvottahús innan íbúðar með góðri innréttingu og vinnuaðstöðu.

Þaksvalir: Einstaklega rúmgóðar svalir sem opnast til norðurs, vesturs og suðurs. Þar er gert ráð fyrir heitum potti og skapast frábær aðstaða til útiveru og slökunar.

Austursvalir: Minni svalir sem snúa í austur og eru með sandblásnu gleri.

Bílastæði: Eigninni fylgja tvö sérmerkt bílastæði í bílageymslu.

Íbúðin afhendist fullbúin en án gólfefna. Innréttingar og fataskápar eru frá Arens og ná upp í loft, sem skapar stílhreint yfirbragð, mikið geymslupláss og góða nýtingu.

Staðsetning og umhverfi

Lóð húsanna er björt og opin með hagstæða suðvesturstefnu. Stutt er í fallega náttúru, skóla og alla helstu þjónustu. Fyrirhugað er að leikskóli rísi í aðeins nokkurra metra fjarlægð.

Ný Ásvallabraut veitir greiðar og þægilegar samgöngur til og frá svæðinu.

Hér er einstakt tækifæri til að eignast glæsilega þakíbúð með þremur svefnherbergjum, hjónasvítu, stórkostlegu útsýni, veglegum þaksvölum og tveimur stæðum í bílageymslu – fyrir aðeins 129 milljónir króna.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á hringhamar21-25.is⁠.

Athygli er vakin á því að hluti mynda er úr sýningaríbúð og sýnir því ekki endilega þessa tilteknu íbúð. Gervigreind hefur einnig verið notuð við myndvinnslu til að setja inn húsgögn og gólfefni í íbúðina, ásamt heitum potti og útihúsgögnum á svalir. Myndirnar eru eingöngu ætlaðar til að gefa hugmynd um mögulegt útlit og nýtingu eignarinnar.


ATH myndir úr sýningaríbúð

https://hringhamar21-25.is/

Allar nánari upplýsingar gefa

Kjartan ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í símia 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali, í síma 6592634 eða stefan@miklaborg.is

Ingimundur Ingimundarsson löggiltur fasteignasali, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is

img
Kjartan Ísak Guðmundsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Miklaborg fasteignasala
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
img

Kjartan Ísak Guðmundsson

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík

Kjartan Ísak Guðmundsson

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík