Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurðsson
Vista
fjölbýlishús

Atlavík 2 - 6

800 Selfoss

59.900.000 kr.

704.706 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2537269

Fasteignamat

56.050.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
85 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Heimaland kynnir í einkasölu, Atlavík 2 - 6 sem eru staðsettar í hinu svokallaða Jórvíkur hverfi á Selfossi. http://www.jorvik800.is
Íbúðirnar eru samþykktar af HMS og gefst kaupendum því kostur á að fá 20% hlutdeildarlán frá HMS samkvæmt reglum stofnunarinnar þar um.


Um er að ræða þrjú ný fjölbýlishús á tveimur hæðum. Í hverju húsi eru sex íbúðir. Húsin eru byggð úr forsteyptum einingum frá Steypustöðinni hf., einangruð að utan og klædd með vandaðri álklæðningu frá Límtré/Vírnet. Gluggar og hurðar eru frá Húsasmiðjunni og eru framleiddir af danska glugga og hurðaframleiðandanum rationel. Handriði á stigum, svalagöngum og svölum eru úr hertu öryggisgleri. Allar íbúðirnar eru með loftskiptakerfi sem tryggir hámarks loftgæði og rétt rakastig innan íbúðar.
Allur lóðafrágangur er vandaður, bílaplön eru malbikuð, gangstéttar hellulagðar með snjóbræðslu og rafhleðsla fyrir rafmagnsbíla er frágengin og tilbúin til notkunar, bílarafhleðsukerið er frá amper, sjá nánar á http://www.amper.is

Í Atlavík 2 - 6, eru samtals um 18 íbúðir sem eru á bilinu 82,2 til 85,0 fermetrar samkvæmt fasteignamati, verð á endaíbúðum er kr. 59.900.000.- en á miðjuíbúðum kr. 58.900.000.-
Íbúðirnar skilast fullbúnar með gólfefnum.


Íbúðirnar telja samkvæmt teikningu: 
Forstofu, alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi/þvottahús og geymslu. 

Forstofa er flísalagt með fataskáp.
Alrými er með harðparketi á gólfum, úr stofu er útgengt á svalir annarrar hæðar en hellulagða verönd á neðri hæð.
Eldhús er með rúmgóðri innréttingu frá VOKE III, http://www.voke3.is með innbyggðum kæli og frystiskáp, innbyggðri uppþvottavél, ofni og span helluborði.
Tvö svefnherbergi eru í húsinu en í hjónaherbergi er rúmgóður fataskápur og í auka herberginu er mjög rúmgóður fataskápur einnig.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og veggjum við sturtu og salerni, baðinnrétting fylgir með speglaskáp. Inn á baðherbergi er þvotta aðstaða, haganlega fyrir komið í innréttingu þar sem þvottavél og þurrkari eru í þægilegri vinnuhæð og góðar skúffur undir.
Geymsla er innan íbúðar með flísum á gólfi.

Allar nánari upplýsingar veita: 
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Fasteignasalan Heimaland ehf.

Fasteignasalan Heimaland ehf.

Brúarstræti 2, 2.hæð - 800 Selfoss
Fasteignasalan Heimaland ehf.

Fasteignasalan Heimaland ehf.

Brúarstræti 2, 2.hæð - 800 Selfoss