Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
219 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 29. september 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Kirkjubrekka 13, 225 Garðabær. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 29. september 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Fasteignasalan Pálsson kynnir: Sérlega fallegt 219 fm parhús á góðum stað í Garðabæ (Álftanesi). Mjög vandað í alla staði. Sérsmíðaðar innréttingar og tæki að vönduðustu gerð. Sérlega vel umgengin og vel skipulögð eign. Örstutt í skólana, íþróttasvæðið og sundlaugina.

Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir Símonarson löggiltur fasteignasali í síma 696-6580 eða thorgeir@palssonfasteignasala.is

Húsið sem er byggt árið 2006 er allt hið vandaðasta. Skipulag hússins:  Efri hæð: Anddyri, snyrting, bílskúr, stofur og eldhús. Neðri hæð: Þrjú svefnherbergi, baðherbergi, sjónvarpshol, þvottaherbergi og geymsla. 

Nánari lýsing
Efri hæð

Anddyri: Komið er inn í anddyri á efri hæð. Falleg snyrting með góðum tækjum og kvartsborðplötu.
Bílskúr: Innangengt úr anddyri inn í flísalagðan bílskúr  með stórum sérsmíðuðum skápum.  
Eldhús: Miele innrétting með kvarts borðplötum. Öll tæki í eldhúsi eru frá Miele, gaseldavél, bakaraofn, gufuofn, örbylgju og bakaraofn, kaffivél og uppþvottavél. Tveir ískápar með frysti og klakavél og vínskápur. Allt innbyggt í innréttinguna. 
Stofa: Björt og góð með stórum gluggum, innfelld lýsing í lofti. 
Neðri hæð
Stigi niður á neðri hæðina, komið er inn á gang og þaðan er útgengt á lóð.
Svefnherbergi: Þrjú góð svefnherbergi með fataskápum en hjónaherbergið er með fataherbergi og útgengi út á lóð.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með vönduðum tækjum og innréttingu, kvarts borðplata.
Sjónvarpshol: Innst á ganginum er rúmgott sjónvarpshol og þar fyrir innan er rúmgott þvottahús með góðri innréttingu. 
Gólfefni: Parket (rauðeik) er á gólfum eldhúss, stofu, stiga, gangi og herbergjum. Flísar á gólfum anddyris, bílskúrs og votrýmum. 
Innréttingar: Eldhúsinnrétting er frá Miele en aðrar innréttingar eru sérsmíðaðar hjá SS byggir á Akureyri. Innihurðir eru allar frá Trévík og eru innfeldar karmalausar. 
Garður og lóð: Stórir pallar og skjólveggir með heitum og köldum potti sem settir voru upp í október 2025. Heitur pottur er með sjálfvirkri WI-FI hitastýringu sem hleypir sjálfvirkt inn á pottinn til að viðhalda kjörhitastigi. Gróðurhús (með ofni, rafmagni, köldu vatni og stýringum fyrir heitan og kaldan potti) og geymsluskúr. Tröppur niður í neðri garðinn þar sem er fjölært beð ásamt matjurtarbeðum. Bílaplan er upphitað með lokuðu kerfi og mynstursteypt ásamt hleðslustöð fyrir rafbíla.

Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir Símonarson löggiltur fasteignasali í síma 696-6580 eða thorgeir@palssonfasteignasala.is
 
 

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Engjateigur 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. jún. 2021
89.150.000 kr.
112.000.000 kr.
219 m²
511.416 kr.
2. ágú. 2007
6.970.000 kr.
33.300.000 kr.
219 m²
152.055 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Engjateigur 3, 105 Reykjavík