Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
raðhús

Stórihjalli 25

200 Kópavogur

134.900.000 kr.

591.407 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2065408

Fasteignamat

132.000.000 kr.

Brunabótamat

121.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1974
svg
228,1 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Valhöll fasteignasala kynnir: Snyrtilegt og vel skipulagt tvílyft 228,1 m2 raðhús með 3-4 svefnherbergjum. Stórt og bjart alrými með mikilli lofthæð, glæsilegu útsýni og hurð út á verönd og gróinn og skjólgóðan garð í suður. Árið 2004 fóru fram talsverðar endurbætur á efri hæð og var þá skipt um öll gólfefni, innihurðar, baðherbergi og eldhús. Þá var einnig loft tekið upp í alrymi. 

Bókið einkaskoðun hjá Óskari H. Bjarnasen fasteignasala / lögmanni í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is


Samkvæmt fasteignayfirliti HMS er húsið skráð alls 247 m2 þar af er íbúðarhlutinn skráður 184,9 m2, bílskúr 43,2 m2, og sólstofa 18,9 mm. Búið er að steypa sökkla/útveggi fyrir sólstofu en hún hefur ekki verið byggð. Húsið er því raun 228,1 m2

Eignin skiptist í eftirfarandi.
Neðri hæð: Anddyri, snyrting, þvottahús og geymsla, stórt hol/sjónvarpsrými. Bílskúr og inn af honum er stór gluggalaus geymsla.
Efri hæð: Alrými sem er eldhús, borðstofa og stofa, hol, 3-4 svefnherbergi og baðherbergi.

Nánari Lýsing:
Neðri hæð
Anddyri –
fataskápar með rennihurðum, flísar á gólfi.
Snyrting – Inn af anddyri. Handlaug á vegg. Flísar á gólfi og opnanlegur gluggi á snyrtingu.
Hol  rúmgott rými inn af anddyri sem nýta má sem sjónvarpsrými með flísum á gólfi. Úr holi neðri hæðar er gengið inn í rúmgott þvottahús og geymslu.
Þottahús – stórt og rúmgott með sturtuaðstöðu, flísum á gólfi og opnanlegum glugga.
Geymsla – inn af þvottahúsi með góðu hilluplássi og flísum á gólfi.
Bílskúr – rúmgóður með steyptu gólfi. Rafmagnsopnun á hurð með fjarstýringum og gönguhurð í bílskúrshurð. 
Geymsla– inn af bílskúr er stórt rúmgóð og gluggalaus geymsla með malargólfi. Um er að ræða hrátt rými sem býður upp á mikla möguleika t.d. sem tómstundarherbergi, þvottahús ofl. Dæmi eru um að önnur hús í lengjunni hafi einnig opnað milli hols og þessa rýmis sem gerir þá bílskúrinn innangengan úr íbúð. 

Gengið er upp timburstiga éfri hæð hússins. Stór gluggi á stigapalli sem gefur góða birtu inn í hol neðri og efri hæðar.

Efri hæð
Alrými – Stofa, borðstofa og eldhús með mikilli lofthæð, frábæru útsýni í norður og hurð út úr stofu á sólpall í suð og suðvestur. Viðarparket á gólfi.
Eldhús – Vönduð L-laga viðarinnrétting með eyju og góðu skápaplássi. Ofn í vinnuhæð.
Stofa – Rúmgóð með innfeldri led lýsingu í lofti. Hurð út í skjólgóðan garð með sólpalli.
Barnaherbergi 1-2: Búið er að taka niður vegg milli tveggja herbergja sem voru áður. Lítð mál að setja upp vegg og koma fyrir hurð aftur. Fatakápur og viðarparket á gólfi.
Hjónaherbergi –  Fataskápar með viðarhurðum. viðarparket á gólfi.
Barnaherbergi 3 – Fataskápar og viðarparket á gólfi.
Baðherbergi – Allt endurnýjað árið 2004. Veggir og gólf flísalagt. Sturtubaðkar með sturtu. Upphengt salerni á vegg. Viðar Innrétting með útdregnum skúffum.

Eignin er frábærlega staðsett innan Kópavogs, stutt frá skólum verslun og annarri þjónustu.

Þak, gluggar og ytra byrði hússins þarnast viðhalds og nánari skoðunar.


Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits:   
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

img
Óskar H. Bjarnasen
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Óskar H. Bjarnasen

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Óskar H. Bjarnasen

Síðumúla 27, 108 Reykjavík