Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
hæð

Borgarholtsbraut 33

200 Kópavogur

89.900.000 kr.

789.982 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2059121

Fasteignamat

84.250.000 kr.

Brunabótamat

53.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1963
svg
113,8 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun -  Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og vel skipulögð 113,8 m2 efri sérhæð í tvíbýlishúsi við Borgarholtsbraut 33 á eftirsóttum stað á Kársnesi í Kópavogi. Eigninni fylgir bílskúrsréttur samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu. Svalir með fallegu útsýni í suðurátt og sameiginlegur bakgarður í suðurátt. 
Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, hol,  gang, baðherbergi og þvottahús. 


Íbúðin er vel staðsett í vesturbæ Kópavogs. Grunnskóli, leikskóli og sundlaug eru í stuttu göngufæri og verslanir og ýmis þjónusta eru í næsta nágrenni.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent


Nánari lýsing:
Gengið er inn um sameiginlegan inngang og þaðan upp stiga á pall sem hefur verið notaður sem forstofa.
Hol er með parketi á gólfi
Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi. Gengið er út á svalir í suðurátt með fallegu útsýni.
Eldhús er með U-laga innréttingu og borðkrók, flísar á gólfi. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, ofn, helluborð og vaskur. Einnig fylgir uppþvottavél sem er í innréttingu.
Gangur er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með flísum á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með flísum á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er lítið með fataskáp og flísum á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt, með baðkari, salerni, handlaug og skáp. Gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús er á hæðinni við hlið inngangs í íbúðina. Innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Eigninni fylgir bílskúrsréttur samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.

Helstu framkvæmdir samkvæmt seljanda: Sett var ný eldhúsinnrétting ásamt flísum i eldhús fyrir ca. 8 árum. Skipt var um allt gler í íbúðinni fyrir um 4 árum. Þak var endurnýjað fyrir um 20 árum síðan.

Verð 89.900.000 kr.
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ