Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður J. Tyrfingsson
Haraldur Björnsson
Vista
einbýlishús

Móaflöt 4

210 Garðabær

154.800.000 kr.

823.404 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2071875

Fasteignamat

145.850.000 kr.

Brunabótamat

94.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1966
svg
188 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

GARÐATORG EIGNAMIÐLUN kynnir til sölu einbýlishús á einni hæð með bílskúr á þessum eftirsótta og vinsæla stað á Flötunum í Garðabæ. Hér er um að ræða vel skipulagt hús með fallegri stofu og borðstofu, eldhúsi, 2 svefnherbergjum, rúmgóðu baðherbergi, þvottahúsi, gestasalerni, tvöföldum bílskúr, stórum og skjólsælum garði. Húsið Móaflöt 4 var byggt árið 1966 og teiknað af Kjartani Sveinssyni. 

Eignin er staðsett á fallegum og rólegum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem leikskóla, grunn- og framhaldsskóla, matvöruverslanir, veitingastaði, heilsugæslu, bókasafn og ýmsa aðra starfsemi á Garðatorgi. Íþróttastarf Stjörnunnar er í næsta nágrenni sem og sundlaugin í Ásgarði, útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir við lækinn og í Heiðmörk. 


Bókið skoðun: Unnur, sími: 8660507  eða unnur@gardatorg.is
*ekki stendur til að halda opið hús að svo stöddu

Nánari lýsing:
Forstofa: flísar á gólfi og fataskápur.
Stofa/borðstofa: björt með stórum gluggum, arinn og falleg hurð þar sem gengið er út í garð. Parketi og flísar á gólfi. 
Eldhús: falleg eikarinnrétting með góðu skápaplássi, ofn í vinnuhæð, gaseldavél, háfur og borðkrókur. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi og baðherbergi: þarfnast lagfæringa.
Bílskúr: rúmgóður en þarfnast standsetningar.
Garður: stór og skjólsæll með miklum gróðri.
Birt stærð eignarinnar hjá FMR 188fm er þar af er bílskúr skráður 52,7fm.

Þetta er áhugaverð eign á eftirsóttum stað sem býður upp á ýmsa möguleika, t.d. er byggingareitur ekki full nýttur sem skapar möguleika á að stækka húsið.

Hér býðst einstakt tækifæri á að eignast einbýli á góðu verði, á þessum eftirsótta stað í Garðabæ, og gera það að sínu.

*Húsið þarfnast standsetningar og eru áhugasamir hvattir til að skoða það vel og kynna sér ástand þess.
*Innra skipulag eignarinnar í dag er ekki í samræmi við útgefnar teikningar.

Fasteignamat ársins 2027 er áætlað kr. 159.950.000.-

Nánari upplýsingar veitir:
Unnur Ýr Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í síma: 8660507 eða  unnur@gardatorg.is

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

 
 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg 7, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. júl. 2007
122.800.000 kr.
59.900.000 kr.
10101 m²
5.930 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg eignamiðlun ehf

Garðatorg 7, 210 Garðabæ