Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Álfkonuhvarf 49

203 Kópavogur

73.900.000 kr.

837.868 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2270373

Fasteignamat

73.400.000 kr.

Brunabótamat

54.220.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2004
svg
88,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Heimili fasteignasala og Brynjólfur Snorrason, lgfs., kynna til sölu bjarta og fallega útsýnis íbúð á þriðju hæð (efstu), ásamt sér stæði í bílageymslu, í lyftuhúsi við Álfkonuhvarf í Kópavogi.  Eignin er skráð 88,2 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 81,4 m2 og geymsla 6,8 m2, og samanstendur af anddyri, tveimur svefnherbergju, baðherbergi, eldhúsi og stofu í opnu rými og rúmgóðum suður svölum. Þá tilheyrir eign sér bílastæði í lokaðri bílageymslu, rúmgóð sérgeymsla í kjallara húseignar sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Vel skipulögð eign í lyftuhúsi. 

Eignin verður ekki sýnd í opnu húsi en áhugasamir geta bókað einkaskoðun hjá Brynjólfi Snorrasyni, lgfs., brynjolfur@heimili.is  

Nánari lýsing.
Anddyri:
Komið upp á hæðina um snyrtilegt lyftuhús og inn í íbúðina um sérinngang af opnum svalagangi. Í anddyri er fataskápur auk fatahengis og á gólfi eru flísar. 
Eldhús: Falleg hvít háglans IKEA innrétting, mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð og örbylgjuofn þar fyrir ofan, flísalagt á milli efri og neðri skápa, innbyggð lýsing undir efri skápum og gluggi til norðurs með opnanlegu fagi. 
Borð- og setustofa: Í opnu rými með eldhúsi, parket á gólfi og útgengi á rúmgóðar svalir með fallegu útsýni ma.a. yfir að Elliðavatni og til Bláfjalla.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, fjórfaldur fataskápur og fallegur horngluggi í suðaustur gefur góða birtu í herbergið. Á gólfi er parket.
Barnaherbergi: Til hægri frá anddyri. Ágætur fataskápur innan herbergis og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi er parket. 
Baðherbergi:
Falleg ljós innrétting með ágætum neðri skáp, handlaug, spegli þar fyrir ofan og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Á baðherbergi er einnig handklæðaofn og sturta. Á gólfi og á veggjum eru flísar. 

í kjallara húseignar er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, sérgeymsla íbúðar og sér bílastæði með rafhleðslustöð í lokuðum bílakjallara. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Brynjólfur Snorrason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. jún. 2022
50.750.000 kr.
67.900.000 kr.
88.2 m²
769.841 kr.
5. sep. 2014
23.400.000 kr.
27.100.000 kr.
88.2 m²
307.256 kr.
2. feb. 2007
20.035.000 kr.
22.700.000 kr.
88.2 m²
257.370 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík