Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
einbýlishús

Háagerði 12

108 Reykjavík

163.900.000 kr.

997.565 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2035013

Fasteignamat

127.750.000 kr.

Brunabótamat

77.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1957
svg
164,3 m²
svg
7 herb.
svg
1 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 30. september 2026 kl. 12:00 til 12:30

Lýsing

Miklaborg kynnir: Einbýlishús á frábærum stað í Gerðunum sem hefur verið endurnýjað á einstaklega vandaðan og smekklegan hátt. Húsið er á tveimur hæðum auk bílskúrs. Endurhannaður garður með stórum (120 fm.) viðhaldsfríum palli úr lerki. Heitur pottur, útisturta og útilýsing. Útiskyggni með tengingu fyrir hitara. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, eldhús, stofur og baðherbergi, auk herbergis með snyrtingu sem hefur verið innréttað í hluta bílskúrs. Grunnflötur neðri hæðar er 86,2 fm., rishæðin er skráð 39,4 fm. en gólfflötur hennar er mun meiri, þar sem súðarfermetrar eru ómældir. Húsið er í rólegum botnlanga, nálægt leik- og grunnskólum.

Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.


Neðri hæð: Komið í flísalagt anddyri með fatahengi og innbyggðum sérsmíðuðum skúffum. Veggþil í forstofu er sérsmíðað. Inn af anddyri er þvottahús. Borðstofa og stofa með eikarparketi. Sérsmíðað eldhús frá 2013, gaseldavél, flísar og hiti í gólfi, góð borðaðstaða. Baðherbegi var endurnýjað 2018 og er með upphengdu salerni, "walk in " sturtu og hita í gólfi. Gluggi er á baðherbergi og marmaraflísar á veggjum. Hjónaherbergi er flísalagt.

Efri hæð: Þar eru þrjú svefnherbergi. Tvö eru ágætlega rúmgóð, þriðja er lítið. Hillur í holi og litla herbergi eru sérsmíðaðar og fylgja með. Sérsmíðaðar innbyggðar skúffur eru í öðru stærra herbergi. Gólfefni efri hæðar eru flísar. Stigahandrið er sérsmíðað.

Bílskúr: Hluti hans er innréttaður sem herbergi, með snyrtingu. Hinn hluti bílskúrs er nýttur sem geymsla.

Bílaplan: Var hellulagt árið 2017, nýjar tröppur að útidyrum sem eru færar fötluðum. Snjóbræðsla er í bílaplani og meðfram bílskúr.

Lóð: Lóðin var endurhönnuð árið 2018. Þá var settur stór pallur úr lerki með lýsingu, heitum potti frá Trefjum og útisturtu. Á sama tíma var jarðvegur endurnýjaðar á allri lóðinni.

2018 var sett nýtt þak á húsið, þakrennur og niðurföll, steyptur strompur fjarlægður og steyptar þakrennur sagaðar af. Nýir gluggar settir í hluta efri hæðar. Árið 2024 voru nýir gluggar settir í suður- og austurhlið jarðhæðar. 7 kW hleðslustöð er fyrir rafbíl.

Þetta er hús sem hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum. á smekklegan og vandaðan hátt. Til er yfirlitsblað yfir framkvæmdir.

Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.


img
Viðar Böðvarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Miklaborg fasteignasala
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
img

Viðar Böðvarsson

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. jún. 2011
32.700.000 kr.
42.300.000 kr.
164.3 m²
257.456 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík

Viðar Böðvarsson

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík