Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1988
64,1 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 23. september 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús miðvikudaginn 23. september milli kl. 17:00 og 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
**Opið hús miðvikudaginn 23. september milli kl. 17:00 og 17:30**Góð tveggja herbergja 64,1m² íbúð á þriðju og efstu hæð við Frostafold í Grafarvogi. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóli, leikskóli, sundlaug og íþróttamiðstöð í göngufæri.
Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax
Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 64,1m²
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi, geymslu/þvottahús og svalir til suðurs.
Nánari lýsing
Anddyri/hol með parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu með góðu skápaplássi, .
Stofan er björt með parketi á gólfi, útgengt út á góðar suður svalir.
Svefnherbergið er mjög rúmgott, parket á gólfi og fataskápar.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og góðri innrétting, baðkár og opnalegur gluggi.
Þvottahús/geymsla er innan íbúðar.
Stór og góður sameiginlegur garður. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Smá um viðhald undanfarin ár.
2015
Múrviðgerðir , húsið málað að utan og skipt um rennur. Allt í eldhúsi endurnýjað nema grunnskápar innréttingar. (Ofn, helluborð, borðplata, vaskur, blöndunartæki, skápafrontar og höldur). Skipt um rofa og tengla.
2018
Stigagangur málaður og skipt um teppi.
2019
Nýtt parket og gólflistar. Nýr fataskápur í anddyri. Nýr fataskápur í svefnherbergi.
2020
Nýtt sturtugler. Ný blöndunartæki og sturtuhaus.
2024
Nýr vaskur á baðherbergi.
2025
Allir bláir fletir á húsinu voru málaðir. Þak var yfirfarið og gert var við skemmd um leið og farið var í framkvæmdir á gluggum. Allir gluggar voru yfirfarnir að utan, skipt um hluta af þeim og sett ál á áveðursfleti. Gluggar og svalahurð í stofu voru endurnýjaðir að öllu leyti í íbúð ásamt einum glugga í svefnherbergi sem var endurnýjaður að hluta.
Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. mar. 2021
31.950.000 kr.
38.100.000 kr.
64.1 m²
594.384 kr.
12. sep. 2014
15.700.000 kr.
20.300.000 kr.
64.1 m²
316.693 kr.
2. sep. 2013
15.400.000 kr.
17.100.000 kr.
64.1 m²
266.771 kr.
19. des. 2006
12.255.000 kr.
15.000.000 kr.
64.1 m²
234.009 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026