Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sævar Þór Jónsson
Vista
fjölbýlishús

Flyðrugrandi 18

107 Reykjavík

126.000.000 kr.

813.953 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2025627

Fasteignamat

105.300.000 kr.

Brunabótamat

86.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1979
svg
154,8 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Fasteignasala Sævars Þórs kynnir vel skipulagða og bjarta fimm herbergja 154,8 fm íbúð á 4. hæð með tvennum svölum við Flyðrugranda 18 í Reykjavík. Húsið á sér merka sögu og hefur ákveðinn status í byggingasögunni, en það var hannað af hinum kunna arkitekt Vilhjálmi Hjálmarssyni.
Eignin skiptist í forstofu, gang, opið rými sem nýtist sem eldhús, stofa og borðstofa, auka rými sem auðveldlega mætti loka og breyta í sérherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og 24 fm bílskúr. Sér 5 fm geymsla er í sameign auk sameiginlegs þvottahúss, hjólageymslu og sameiginlegs herbergis, auk þess sem sauna er í sameign.
 
Rétt er að taka fram að gengið er inn í sameign á 2. hæð og þaðan er gengið upp á 4. hæð þar sem íbúðin er, en vert er að vekja athygli á að það þarf ekki að labba upp 4 hæðir.
 
Nánari lýsing.
Forstofan er parketlögð með stórum innbyggðum fataskáp. Frá forstofu er gangur sem tengir saman alrými og svefnherbergi.
Í alrými er stofa, borðstofa og eldhús.
Eldhúsið er opið með snyrtilegri, eldri innréttingu.
Stofan er rúmgóð og björt með stórum suðursvölum. Það má taka fram að svalirnar út frá stofunni eru mjög sólríkar. Á öllum alrýmum íbúðarinnar er ljóst fiskibeinaparket.
Baðherbergið er upprunalegt með snyrtilegri hvítri innréttingu og hvítri veggklæðningu en dökkum gólfflísum.
Svefnherbergin eru tvö með ljósu parketi. Nægt skápapláss er til staðar. Hægt væri að breyta stærra svefnherberginu í tvö herbergi og hefur það verið gert í mörgum íbúðum í húsinu.
Innst í svefnálmunni er opið rými með útgangi út á svalir sem snúa í norður. Rýmið gæti nýst sem sjónvarpsherbergi. Þetta rými tengist einnig stofunni og myndar þannig ákveðið hringflæði í gegnum íbúðina. Með einföldum hætti væri hægt að breyta þessu rými í þriðja svefnherbergið. Búið er að skipta um alla miðstöðvarofna í íbúðinni fyrir utan þá sem eru í svefnherbergjunum.
 
Bílskúr og bílastæði:
Rúmgóður 24 fm sérbílskúr fylgir eigninni. Gert er ráð fyrir bílastæði fyrir íbúðina á sameiginlegu bílastæði en svo fylgir sérstakt bílastæði með bílskúrnum að auki.
 
Sameign og geymslur:
Sameignin er snyrtileg og teppalögð og hefur verið vel viðhaldið. Húsið var endurnýjað að mestu leyti eftir úttekt á þaki, tréverki og steypu.
Rúmgóð sérgeymsla fylgir íbúðinni í sameign, auk hjólageymslu.  Sameiginlegt herbergi er í kjallara hússins, stórt og með útgengi út í sameiginlegan garð.
Sameiginlegt þvottahús er á sömu hæð og íbúðin.
Einnig er sameiginleg sauna með sturtu í húsinu.
 
Staðsetning og þjónusta:
Eignin er á mjög eftirsóttum stað í Vesturbænum. Stutt er í alla helstu þjónustu. Í nokkurra mínútna göngufjarlægð er grunnskóli, leikskóli, matvöruverslanir og sundlaug Vesturbæjar. Stutt er í alla almenna þjónustu.

img
Sævar Þór Jónsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Sævars Þórs
Skipholti 50C, 105 Reykjavík
Fasteignasala Sævars Þórs

Fasteignasala Sævars Þórs

Skipholti 50C, 105 Reykjavík
img

Sævar Þór Jónsson

Skipholti 50C, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. mar. 2015
36.350.000 kr.
15.000.000 kr.
150.2 m²
99.867 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Sævars Þórs

Fasteignasala Sævars Þórs

Skipholti 50C, 105 Reykjavík

Sævar Þór Jónsson

Skipholti 50C, 105 Reykjavík