Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1982
svg
238,8 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

**BÓKIÐ SKOÐUN**Fallegt og frábærlega vel staðsett parhús með innbyggðum bílskúr og möguleika á aukaíbúð við Daltún 34 Kópavogi. Um er að ræða eign sem er skráð skv HMS 238,8fm og þar af er bílskúr 43,2fm. Svefnherbergi eru alls 6 talsins, 4 á efstu hæð og 2 á jarðhæð. Baðherbergi eru tvö talsins, á miðhæð og efstu hæð, en möguleiki er á að gera baðherbergi á jarðhæð. Húsið er á 3 hæðum og möguleiki er á að útbúa aukaíbúð á jarðhæð með sér inngangi . Aðkoman er falleg og húsið lítur vel út og er með glæsilegum grónum garði, verönd með nýlegri gufu og heitum potti og hellulögðu bílaplani. Frábær staðsetning með útivistarparadísina Fossvogsdalinn í næsta nágrenni. BÓKIÐ EINKASKOÐUN: Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali sími 899-3090 eða elina@valholl.is
Nánari lýsing:

Aðalhæð: Forstofa: komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp. 
Baðherbergi: innaf forstofu er fallegt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með góðri sturtu, upphengdu salerni, innréttingu og opnanlegum glugga.
Eldhús: eldhúsið er mjög rúmgott og bjart þar sem pláss er fyrir stórt eldhúsborð. Innréttingin er með góðu skápaplássi hvít/eik og með kvartstein á borðum. Uppþvottavél og ísskápur eru innfelld, spanhelluborð og tvöfaldur ofn er í vinnuhæð. Fallegt viðarparket á gólfi. 
Þvottahús: innaf eldhúsi er þvottahús með flísum á gólfi, glugga, snúrum og skáp.
Stofur: stofa og borðstofa eru samliggjandi með eikarparketi á gólfi og frá stofum er útgengt út í garð. Nýr gluggi í stofu 2026
Efri hæð: frá holi er gengið uppá efri hæð hússins sem skiptist í 4 svefnherbergi og baðherbergi. Þakgluggar eru nýir 2026.
Svefnherbergin eru 4 og öll með viðarparketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergi: baðherbergið er með glugga, bjart og fallegt flísalagt er í hólf og gólf, sturtuklefi er vandaður, upphengt salerni og handklæðaofn. Innréttingin er hvít með límtrésborðplötu.
Neðri hæð: neðsta hæðin skiptist í rúmgott svefnherbergi með glugga og stórt og gott svefnherbergi eða fjölskyldurými þar sem stúka mætti af eldhúsaðstöðu og bað fyrir þá sem þurfa auka íbúðarrými en þaðan er útgengt út á bílaplan. Rúmgóður bílskúr með flísum á gólfi, vaski og lítilli innréttingu er einnig á jarðhæð og er innangengt í hann frá holi.  Gott geymslurými mætti stúka af innaf bílskúr. Neðsta hæðin hefur verið notuð sem auka íbúð hjá fyrri eigendum og möguleiki er því á að breyta hæðinni aftur í sér íbúðarými með sérinngangi. 
Tréverk í þakkanti hússins var endurnýjað 2026 ásamt stofuglugga og þakgluggum á efstu hæð hússins.

Þetta er rúmgott og fallegt fjölskylduhús með góðum garði á frábærum stað í Kópavoginum þar sem stutt er í alla þjónustu og fallega náttúru í Fossvogsdalnum. Allar nánari upplýsingar veitir Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8993090 eða elina@valholl.is

img
Elín Alfreðsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Elín Alfreðsdóttir

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. nóv. 2020
75.700.000 kr.
96.000.000 kr.
238.8 m²
402.010 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Elín Alfreðsdóttir

Síðumúla 27, 108 Reykjavík