Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Breiðvangur 18

220 Hafnarfjörður

92.900.000 kr.

604.818 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2073931

Fasteignamat

81.750.000 kr.

Brunabótamat

69.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1976
svg
153,6 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

- Fjögur svefnherbergi
- Bílskúr
- Þvottahús innan íbúðar
- Óhindrað og víðáttu mikið útsýni


Eignin er 5-6 herbergja og skráð 153,6 fm samkvæmt HMS, þar af 129,5 fm íbúð og 24,1 fm bílskúr.

Falleg íbúð á fjórðu hæð í friðsamlegu fjölbýli.
Fjögur svefnherbergi innan íbúðar og auka herbergi (hobbý-herbergi) með glugga og opnanlegu fagi í kjallara.

Eignin hefur fengið gott viðhald og ber þar helst að nefna:
-Þak endurnýjað 2017
-Skólp endurnýjað 2021
-Drenað 2022 og hellulögð ný upphituð stétt
-Nýlegir gluggar á 3 af 4 hliðum
-Hleðslustaurar á bílastæði 2025
Blokkin er einnig klædd að utan og því viðhaldslétt.
Virkt húsfélag og hefur verið rætt að endurnýja dyrasíma.

Að innan eru öll rými parketlögð fyrir utan votrými, en bæði baðherbergi og þvottahús eru flísalögð.
Svalir eru með svalalokun og frábæru útsýni.
Stigagangur og sameign snyrtileg.

Göngufæri við leikskóla, grunnskóla, matvöruverslun og fjölbreytta þjónustu.
Spark völlur nánast í bakgarðinum og einnig brekka fyrir aftan hús sem er vinsæl á veturnar til að renna sér.

Nánari upplýsingar veita:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.is

Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofu sem flæðir saman við borðstofu og alrými.
Stofa er björt og rúmgóð með stórum gluggum og miklu útsýni. Parketlögð og býður upp á góða möguleika á bæði setu-, sjónvarps- og borðstofuaðstöðu.
Útgengt er úr stofu á svalir með svalalokun og óhindruðu víðáttumiklu útsýni.
Eldhús er parketlagt. Hvít eldhúsinnrétting með flísum á milli efri og neðri skápa, nýlegu helluborði og slitsterkri borðplötu.
Hjónaherbergi er parketlagt og rúmgott með góðum loftháum skápavegg.
Þrjú önnur svefnherbergi, öll parketlögð og nýtast sem barnaherbergi, gestaherbergi eða skrifstofurými.
Gangur með loftháum skápum aðskilur stofu frá svefnherbergjum og í enda gangsins er baðherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með glugga og opnanlegu fagi. Útbúið baðkari og sturtuaðstöðu, snoturri vaskinnréttingu með nýlegum blöndunartækjum, upphengdum skáp og salerni.
Þvottahús er innan íbúðar, flísalagt með glugga og opnanlegu fagi og góðu geymslurými.
Auka herbergi er í kjallara sem býður upp á marga möguleika. Er með glugga og opnanlegu fagi.
Sérgeymsla fylgir í sameign.
Sameiginleg hjólageymsla er í húsinu.
Bílskúr er skráður 24,1 fm og fylgir eigninni.

Sameign og stigagangur eru snyrtileg og húsið stendur á friðsælum stað.
Rúmgóð fjölskyldueign með fjórum svefnherbergjum, góðu skápa- og geymsluplássi, sérþvottahúsi, bílskúr og miklu útsýni.


www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Engjateigur 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. júl. 2020
45.850.000 kr.
48.500.000 kr.
153.6 m²
315.755 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Engjateigur 3, 105 Reykjavík