Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Upplýsingar
svg
Byggt 1995
svg
181,9 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Valhöll kynnir mjög fallegt endaraðhús á góðum stað í Laufrima í Grafavogi. Húsið er skráð 181,9 fm á stærð og þar af er 25,3 fm bílskúr. Húsið lítur vel út að innan og utan með einstaklega fallegri lóð umhverfis húsið. Húsið er vel staðsett og er örstutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. 

Húsið hefur verið endurnýjað mikið að innan, m.a. eldhús, gólfefni, raflagnaefni, fataskápum í forstofu og baðherbergi að hluta. Lóðin er með timburverönd, fallegri hellulögn fyrir framan og við hlið hússins ásamt grasbala og gróðri. Heitur pottur er á timburverönd. Aukin lofthæð er í stofu/borðstofu.

Húsið skiptist í anddyri, baðherbergi, fjögur herbergi, eldhús, stofu / borðstofu, sjónvarps/vinnu- eða leikrými, þvottahús og bílskúr.

Fyrirhugað fasteignamat 2027 er 130.000.000 kr.

Þetta er mjög falleg eign sem vert er að skoða.

Nánari lýsing:

Aðalhæð:
Anddyri:
með flísum á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi: með fataskáp og parketi á gólfi.
Hjónaherbergi: með fataskápum og parketi á gólfi.
Eldhús: með fallegri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél, ísskáp, ofni og örbylgjuofni í vinnuhæð, borðkrók og parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa: með aukinni lofthæð, parketi á gólfi og útgengi á verönd og í garð bakvið húsið.
Baðherbergi: með sturtuklefa, baðkari, innréttingu með tveimur vöskum og flísum á gólfi og veggjum.
Þvottahús: með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, góðum skápum, þvottasnúrum og flísum á gólfi.
Bílskúr: 25,3 fm bílskúr með skápum og hillum, rafmagnshurðaopnara og epoxy á gólfum.

Ris:
Herbergi: með þakglugga og parketi á gólfi.
Herbergi: með þakglugga og parketi á gólfi.
sjónvarps/vinnu- eða leikrými: með þakglugga og parketi á gólfi.

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.





 

img
Snorri Björn Sturluson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Snorri Björn Sturluson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Snorri Björn Sturluson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík