Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ellert Bragi Sigurþórsson
Daði Runólfsson
Vista
fjölbýlishús

Hraunbær 103c

110 Reykjavík

67.900.000 kr.

1.076.070 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2504356

Fasteignamat

55.650.000 kr.

Brunabótamat

38.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
63,1 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna: Glæsilega nýlega tveggja herbergja íbúð fyrir 60 ára og eldri á 5 hæð í Hraunbær 103c í Árbænum með útsýni upp í Bláfjöll og yfir Reykjanesið.

Um er að ræða 2ja herbergja íbúð á fimmtu hæð, sameiginlegur inngangur að íbúð.
Komið er inn í forstofu/hol með tvöföldum forstofuskáp, sem tengir saman allar vistaverur íbúðarinnar. Baðherbergið er rúmgott með walk in sturtu með glerþili, innrétting með skápum undir handlaug og spegli fyrir ofan handlaug, fallegar flísar ásamt gólfhita. Einnig er tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð á baði inn í innréttingu. Bjart og rúmgott hjónaherbergi með skápum. Eldhús og stofa er eitt rými sem er mjög bjart með útgengt út á svalir með glerlokun. Eldhúsinnréttingu er L-laga með steini á borðum, ísskápur fylgir ekki, gert er ráð fyrir uppþvottavél (fylgir ekki). 
Eigninni fylgir EKKI stæði í bílgeymslu en möguleiki er á að leigja stæði gegn hóflegu gjaldi.

Myndbandshlekkur hér

Glæsileg staðsett hús í rótgrónu hverfi, þar sem húsið stendur hátt, verður einstakt útsýni úr flestum íbúðunum.  Góð aðstaða til útivistar. Aðgengi að þjónustu og félagsmiðstöð við Hraunbæ 105 hjá Reykjavíkurborg sem þjónustar meðal annars Hraunbæ 103 A.B. og C. Heitur matur í hádeginu, klippistofa og snyrtistofa ásamt annarri þjónustu.


Eignin Hraunbær 103c er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 250-4356, birt stærð 63.1 fm. Nánar tiltekið eign merkt 05-08, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

NÁNARI LÝSING:
Forstofa/hol: með harðparketi á gólfi og tvöföldum forstofuskáp.
Eldhús/stofa: með fallegri L-laga innréttingu með hvítum efri skápum, viðarlituðum neðri skápum og ljósi undir efriskápum, helluborði, ofni, ljósri steinborðplötu og ísskápur sem getur fylgt.
Baðherbergi: með ljósum flísum á gólfi og á tveimur veggjum, innréttingu með vaski og speglaskáp fyrir ofan með ljósum. 
Walk in sturtu með glerþili og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Hjónaherbergi: mjög bjart og rúmgott með góðum fataskápum.
Geymsla: Sér geymsla í sameign með hillum sem geta fylgt.

Niðurlag:
Stutt í fallegar gönguleiðir í Elliðaárdal og verslunar- og þjónustukjarnan og heilsugæsluna í Árbæ.

Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

img
Elín Urður Hrafnberg
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Gimli fasteignasala
Skipholt 35, 105 Reykjavík
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone
img

Elín Urður Hrafnberg

Skipholt 35, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. nóv. 2020
31.650.000 kr.
45.500.000 kr.
63.1 m²
721.078 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone

Elín Urður Hrafnberg

Skipholt 35, 105 Reykjavík